Það voru kartöflubændurnir í Vesturholtum, sem byrjuðu að taka upp í dag, bræðurnir Helgi og Birkir Ármannssynir með sína aðstoðarmenn á upptökuvélinni á færibandinu.
„Mér list bara glimrandi vel á þetta, þetta lítur bara mjög vel út. Kartöflurnar eru ljómandi fínar og fallegar, það er ekki annað hægt að segja,” segir Helgi.
Helgi segir að vorið hafa verið bændum erfitt, mikil bleyta og kuldi en síðustu vikur hafi gert gæfumuninn með sprettuna með góðum hita.
„Nú fara þær í verslanir á höfuðborgarsvæðinu á morgun. Þær voru þvegnar seinni partinn í dag og þá fara þær með bíl í fyrramálið og koma í búðir upp úr hádegi á morgun.”

Í dag eru 11 fjölskyldur í Þykkvabæ í kartöflurækt og því mikil törn fram undan hjá bændum og búaliði að taka upp kartöflur.
En erum við dugleg að borða kartöflur eða eigum við að vera duglegri?
„Við mættum alveg vera duglegri en það er bara kannski svo mikið að gera hjá öllum. Nei, nei, þetta gengur bara ágætlega, Íslendingar vilja íslenskar kartöflur,” segir Helgi.

Og það var ekki hægt að koma í Þykkvabæ án þess að fá að smakka nýjar kartöflur en bræðurnir eru sammála um að þær séu bestar nýsoðnar með smjöri og salti.
