
Skógareldar loga nú á rúmlega 80 stöðum í Grikklandi og af þeim kviknuðu eldar á 64 stöðum um helgina. Eldar loga skammt frá byggð á Corfu og Rhodes sem kviknuðu vegna mikils hita á svæðinu en í dag mældist hitinn á Rhodes 38 gráður. Fólk hefur verið flutt frá báðum eyjunum.
Yannis Artopoios talsmaður Slökkviliðsins í Grikklandi segir að um 19 þúsund manns, aðallega ferðamenn, hafi verið fluttir til á Rhodes eyju um helgina eftir að eldarnir nálguðust strandsvæði.
„Þetta er stærsta verkefni við að flytja íbúa og ferðamenn sem hefur nokkru sinni verið ráðist í í þessu landi," segir Artopoios.

Vindasamt hefur verið á svæðinu þannig að eldarnir ná að breiða hratt úr sér. Evrópusambandið og fjölmörg ríki hafa sent tæki og mannskap til aðstoðar Grikkjum. Þeirra á meðal Slóvakar, Króatar, Frakkar og Tyrkir. Tyrkir hafa meðal annars sent flugvélar og þyrlur sem geta varpað vatni á eldana. Í dag bættist síðan við liðsauki frá Rúmeníu sem sendi slökkvilið og fjölda slökkvibíla og til Rhodes.
Algert öngþveiti ríkir á flugvellinum á Rhodes þar sem fjöldi ferðamanna reynir að komast heim til sín. Bretar hafa komið á eins konar loftbrú til að flytja sína þegna heim frá Rhodes. Rishi Sunak forsætisráðherra segir fulltrúa utanríkisráðuneytisins hafa verið senda til Rhodes til að skipulegga flutningana.
„Mikilvægast er að fólk sé í sambandi við ferðaskrifstofur sínar. Það eru margar flugferðir til að flytja fólk heim og fólk fær nauðsynlegar upplýsingar hjá ferðaskrifstofunum," sagði Sunak í dag.