Laura Nickel er 34 ára og kenndi ensku og sögu í Mina Witkojc-skólann í Burg en hinn 31 árs gamli Max Teske hafði starfað þar í þrjú ár og kenndi stærðfræði og landafræði. Saman reyndu þau allt hvað þau gátu til að hefta framgöngu öfgafullra skoðana og hegðunar nemenda sinna.
Eineltisseggir sem vildu lúskra á innflytjendum sem gengu í skólann fengu ráðgjöf hjá kennurunum. Þau fjölguðu kennslustundum um nasíska fortíð Þýskalands og buðu hörundsdökkum rappara að ræða við börnin um tillitssemi og virðingu.
En ekkert af þessu gekk og þau ákváðu þá að birta opinbert bréf í dagblöðum bæjarins þar sem þau greindu frá nasistakveðjum barnanna, hakakrosskroti í skólastofum og spilun barnanna á rasískri tónlist á göngum skólans.

Kröfur um uppsagnir og nafnlausar hótanir
Í bréfinu skrifuðu þau að „kennarar og nemendur sem berjast opinberlega gegn öfga-hægri-skoðunum“ í skólanum óttuðust um öryggi sitt.
„Það þarf að gangast við vandamálinu og berjast opinberlega gegn því. Skólar eiga að vera staðir sem eru lausir við ótta, án hleypidóma og öryggir og mega ekki vera staður fyrir óvini lýðræðis,“ sagði einnig í bréfinu.

Þau óraði þó ekki fyrir viðbrögðunum sem þau myndu fá við birtingu bréfsins. Nafnlaus hópur foreldra sendi bréf á skólann og krafðist þess að kennurunum yrði sagt upp. Límmiðar sem stóð á „Drullið ykkur til Berlínar“ voru límdir á ljósastaura í nágrenni við skólann og á samfélagsmiðlum hótaði einstaklingur því að hafa upp á þeim.
Þegar þau sáu hve lítinn stuðning kollegar, skólastjóri og aðrir stjórnendur sýndu þeim ákváðu þau að yfirgefa bæði skólann og bæinn sem liggur suðaustan af Berlín.
„Öfga-hægri yfirlýsingar, verknaður og slagorð, hómófóbía og kynjamismunun voru og eru helstu mál á dagskrá í þessum skóla,“ sagði hin 34 ára gamla Nickel, sem hafði starfað við skólann í fjögur ár, í viðtali við AP um stöðuna í skólanum.