Fulltrúar Íslands keppa allir í kastgreinum en það eru þau Hilmar Örn Jónsson úr FH og Guðni Valur Guðnason og Erna Sóley Gunnarsdóttir úr ÍR.
Hilmar, sem keppir í sleggjukasti, fer á sitt þriðja heimsmeistaramót því hann var einnig með á HM í London 2017 og í Eugene í Bandaríkjunum í fyrra.
Guðni keppir í kringlukasti á sínu öðru heimsmeistaramóti, eftir að hafa verið með í Doha í Katar árið 2019. Þeir Guðni og Hilmar komust báðir í úrslit í sinni grein á EM í fyrra.
Kúluvarparinn Erna Sóley er hins vegar á leiðinni á sitt fyrsta heimsmeistaramót.
Guðmundur Karlsson, afreks- og framkvæmdastjóri frjálsíþróttasambands Íslands, gleðst yfir því að Ísland eigi nú þrjá fulltrúa á HM.
„Það er sérstaklega ánægjulegt að ná inn þremur keppendum á Heimsmeistaramótið að þessu sinni, síðustu tvö HM hefur einn keppandi náð tilskildum árangri og ljóst að við erum á uppleið. Öll eru þau á góðri vegferð og sem kastarar öll ung og eiga mikið eftir af ferlinum. Við hjá FRÍ erum fyrst og fremst stolt af árangrinum á árinu hingað til og þessi þrjú eiga stóran þátt í því. Við nálgumst þetta verkefni með bjartsýni, eftirvæntingu og skýrum markmiðum,“ segir Guðmundur á vef FRÍ.
Með á fyrsta keppnisdegi
Guðni Valur og Hilmar Örn kasta í undankeppni í kringlu- og sleggjukasti á fyrsta keppnisdeginum, mánudaginn 19. ágúst. Úrslitakeppnin fer fram á þriðjudeginum í sleggjukasti en á miðvikudeginum í kringlukasti.
Erna Sóley kastar í undankeppni í kúluvarpi á áttunda keppnisdegi, laugardaginn 26. ágúst. Úrslitin fara fram sama dag.