Fótbolti

Leik Alberts og öllum öðrum á Ítalíu frestað vegna and­láts páfa

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ronaldinho færir Frans páfa fótboltatreyju.
Ronaldinho færir Frans páfa fótboltatreyju. getty/Franco Origlia

Öllum fótboltaleikjum sem áttu að fara fram á Ítalíu í dag hefur verið frestað vegna andláts Frans páfa.

Páfagarður staðfesti að Frans páfi hefði látist í morgun, 88 ára að aldri. Hann hafði glímt við veikindi síðustu vikur.

Fráfall páfa hefur ýmis áhrif og meðal annars hefur öllum fótboltaleikjum á Ítalíu verið frestað til að heiðra minningu hans.

Fjórir leikir áttu að fara fram í ítölsku úrvalsdeildinni í dag. Albert Guðmundsson og félagar hans í Fiorentina áttu að mæta Cagliari á Sardiníu.

Þá átti Juventus, sem er í harðri baráttu um sæti í Meistaradeild Evrópu, að mæta Parma á útivelli.

Ekki liggur fyrir hvenær leikirnir sem verður frestað fara fram að því er fram kemur í tilkynningu frá ítölsku úrvalsdeildinni.

Uppfært 11:10

Öllum íþróttakappleikjum, ekki bara fótboltaleikjum, sem áttu að fara fram á Ítalíu í dag hefur verið frestað vegna fráfalls Frans páfa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×