Athugasemd ritstjórnar: Meintur dauði Lil Tay virðist hafa verið uppspuni.
Lil Tay, sem heitir réttu nafni Claire Hope, skaust á stjörnuhiminn netheima aðeins níu ára gömul með birtingu rappmyndbanda á Instagram árið 2018. Þeim mynböndum eyddi Lil Tay fyrir skömmu sem gerði aðdáendur hennar áhyggjufulla.
Það var sömuleiðis á Instagram sem ónefndur fjölskyldumeðlimur staðfesti orðróm sem hafði verið á kreiki um dauða hennar. Kom þar fram að bróðir hennar sé einnig látinn en ekkert er gefið upp um ástæðu dauða þeirra. Málið er því allt hið dularfyllsta.
„Það er með mikilli sorg sem við greinum frá dauða okkar ástkæru Claire. Við eigum engin orð til þess að lýsa þessum gríðarlega missi og sársauka,“ segir í tilkynningunni. „Þetta var algjörlega óviðbúið og er okkur öllum mikið áfall.“
Stormasamt samband við fjölskylduna
Þá segir að dauði þeirra beggja sé enn til rannsóknar. Bróðir hennar heitir Jason Tian og var 21 árs gamall.
Í kjölfar vinsælda Lil Tay komu fram ásakanir í fjölmiðlum á hendur föður hennar og bróður. Var faðir Claire sakaður um kynferðislegt og andlegt ofbeldi gegn henni og bróðir hennar um misneytingu.
„Á þessum tímum biðjum við um frið á meðan við syrgjum þennan missi,“ segir enn fremur í tilkynningunni. „Claire mun ávallt dvelja í hjörtum okkar, hennar fjarvera mun skilja eftir tómarúm sem allir sem hana þekktu munu finna fyrir.“
Faðir Claire, lögfræðingurinn Christopher Hope, neitaði að tjá sig um málið við Daily mail. Í frétt Daily mail eru helstu atburðir í lífi Lil Tay, fram að dauða hennar, raktir. Kemur þar fram að Claire hafi átt í stormasömu sambandi við föður hennar og stjúpmóður. Bróðir hennar hafi reynt að safna pening fyrir Claire eftir að ásakanir um ofbeldi komu fram en jafnfram nýtt sér vinsældir hennar til hins ítrasta. Myndband af bróður hennar að þjálfa hana fyrir framkomu á netinu fór víða á samfélagsmiðlum í kjölfarið.
Lil Tay being coached what to say by her brother... SAD! pic.twitter.com/lJi7o2AXnp
— KEEM 🍿 (@KEEMSTAR) May 21, 2018
Lil Tay hafði ekki verið virk á Instagram í nokkur ár. Í apríl 2021 skrifaði Lil Tay orðin „hjálpið mér“ í hringrás (e. story) sinni á Instagram, sem vakti grunsemdir margra um að ekki væri allt með felldu hjá henni og fjölskyldu.