Mótið er góðgerðarmót Nesklúbbsins á Seltjarnarnesi og fór fram í 27. sinn á frídegi verslunarmanna, 7. ágúst. Að vanda tóku bestu kylfingar landsins tóku en mótið í ár var til styrktar Félags áhugafólks um Downs-heilkenni.
Það var Birgir Björn Magnússon sem fór með sigur af hólmi í ár en hann sigraði Gunnlaug Árna Sveinsson í „shoot-out-i“ á 9. braut.
Mótið er eins og áður sagði fyrst og fremst góðgerðarmót og afhentu þau Þorsteinn Guðjónsson formaður Nesklúbbsins og Kristbjörg Kristinsdóttir Fjármálastjóri STEFNIS, sem var styrktaraðili mótsins í ár, þeim Örnu Dís og Nóa Sæ fulltrúum félags áhugafólks um Downs heilkenni ávísun að upphæð kr. 1.000.000.-
Þátturinn í kvöld er í umsjón Loga Bergmanns Eiðssonar og Steingríms Þórðarsonar. Hann hefst klukkan 20:00 og verður sýndur á Stöð 2 Sport.