Fimm hundraðasti meistaraflokksleikur Daníels í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. ágúst 2023 16:31 Daníel Laxdal hefur spilað með meistaraflokki Stjörnunnar í tuttugu ár. Vísir/Hulda Margrét Daníel Laxdal spilar í kvöld meistaraflokksleik númer fimm hundruð fyrir Stjörnuna en hann er langleikjahæsti leikmaður félagsins. Það má búast við að Garðbæingar fjölmenni á leik kvöldsins enda möguleiki á að landa mikilvægum sigri og heiðra einn allra besta son félagsins. Stjarnan mætir KR í kvöld í lokaleik tuttugustu umferðar Bestu deildar karla en með sigri tryggja Stjörnumenn sér þriggja stiga forskot á FH og KR í baráttunni um fjórða sætið. Daníel hefur leikið 499 meistaraflokksleiki í öllum keppnum fyrir Stjörnuna samkvæmt heimasíðu KSÍ en hann hefur spilað með meistaraflokksliði félagsins frá árinu 2004. Á tíma Daníels með meistaraflokki þá vann Stjarnan sér sæti í efstu deild, festi sig í sessi í efstu deild, varð að toppliði í deildinni og vann báða titla sína, Íslandsmeistaratitil 2014 og bikarmeistaratitil 2018. Daníel hefur alls spilað 287 leiki fyrir Stjörnuna í efstu deild sem eru 114 fleiri leikir en næsti maður á lista. Hann spilaði einnig 59 leiki í B-deildinni áður en Stjarnann komst upp 2008, hefur spilað 42 bikarleiki, 89 leiki í deildabikar, 1 leik í Meistarakeppni KSÍ og loks á Daníel að baki 21 af 22 Evrópuleikjum Stjörnunnar í sögunni samkvæmt skráningu KSÍ. Leikur Stjörnunnar og KR hefst klukkan 19.15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.
Það má búast við að Garðbæingar fjölmenni á leik kvöldsins enda möguleiki á að landa mikilvægum sigri og heiðra einn allra besta son félagsins. Stjarnan mætir KR í kvöld í lokaleik tuttugustu umferðar Bestu deildar karla en með sigri tryggja Stjörnumenn sér þriggja stiga forskot á FH og KR í baráttunni um fjórða sætið. Daníel hefur leikið 499 meistaraflokksleiki í öllum keppnum fyrir Stjörnuna samkvæmt heimasíðu KSÍ en hann hefur spilað með meistaraflokksliði félagsins frá árinu 2004. Á tíma Daníels með meistaraflokki þá vann Stjarnan sér sæti í efstu deild, festi sig í sessi í efstu deild, varð að toppliði í deildinni og vann báða titla sína, Íslandsmeistaratitil 2014 og bikarmeistaratitil 2018. Daníel hefur alls spilað 287 leiki fyrir Stjörnuna í efstu deild sem eru 114 fleiri leikir en næsti maður á lista. Hann spilaði einnig 59 leiki í B-deildinni áður en Stjarnann komst upp 2008, hefur spilað 42 bikarleiki, 89 leiki í deildabikar, 1 leik í Meistarakeppni KSÍ og loks á Daníel að baki 21 af 22 Evrópuleikjum Stjörnunnar í sögunni samkvæmt skráningu KSÍ. Leikur Stjörnunnar og KR hefst klukkan 19.15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Tímabil Daníels Laxdal með Stjörnunni 2009-2022: 1 sinni Íslandsmeistari (2014) 2 sinnum í öðru sæti (2016, 2017) 3 sinnum í þriðja sæti (2013, 2018, 2020) 3 sinnum í fjórða sæti (2011, 2015, 2019) 2 sinnum í fimmta sæti (2012, 2022) 2 sinnum í sjöunda sæti (2009, 2021) 1 sinni í áttunda sæti (2010)
Tímabil Daníels Laxdal með Stjörnunni 2009-2022: 1 sinni Íslandsmeistari (2014) 2 sinnum í öðru sæti (2016, 2017) 3 sinnum í þriðja sæti (2013, 2018, 2020) 3 sinnum í fjórða sæti (2011, 2015, 2019) 2 sinnum í fimmta sæti (2012, 2022) 2 sinnum í sjöunda sæti (2009, 2021) 1 sinni í áttunda sæti (2010)
Besta deild karla Stjarnan Mest lesið Vandræði KR við nýja völlinn: „Hér var bara mýri og ruslahaugur“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 108-100 | Stjarnan skrefinu á undan Körfubolti Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 100-78 | Ótrúlegur sigur Stólanna Körfubolti Uppgjörið: Þór/KA - Tindastóll 2-1 | Endurkoma í Boganum Íslenski boltinn Forest upp í þriðja sætið eftir sigur á Tottenham Enski boltinn „Ekki til nokkur einasta króna á Sauðárkróki í kvennafótbolta” Íslenski boltinn Fram einum sigri frá úrslitum Handbolti Leik Alberts og öllum öðrum á Ítalíu frestað vegna andláts páfa Fótbolti Uppgjörið: FHL - Valur 0-2 | Valskonur sóttu þrjú stig austur Íslenski boltinn Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Enski boltinn Fleiri fréttir „Ekki til nokkur einasta króna á Sauðárkróki í kvennafótbolta” „Kemur einn leikmaður sem við getum staðfest í kringum næsta leik” „Við stóðum af okkur storminn“ Uppgjörið: Þór/KA - Tindastóll 2-1 | Endurkoma í Boganum Uppgjörið: FHL - Valur 0-2 | Valskonur sóttu þrjú stig austur „Vonandi fáum við fulla stúku í dag“ Vandræði KR við nýja völlinn: „Hér var bara mýri og ruslahaugur“ „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Ástbjörn missir af næstu leikjum KR ÍA og Vestri mætast inni Stefán Gísli fékk fimm ára samning hjá Val Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Fram og Þór Ak. áfram í bikarnum HK vann Lengjudeildarslaginn og fór áfram í bikarnum Tveir fimmtán ára með þrjú fyrir KR | Adam Ægir skoraði strax fyrir Val „Varst þú ekkert í bláu spurningunum?“ Um afhroð Stjörnunnar í Kópavogi: „Ég spáði þessu jafntefli“ Stjarnan og Vestri áfram eftir fjölda marka og mikla dramatík Breiðablik ekki í vandræðum og mögnuð endurkoma Þróttar Skagamenn og Selfyssingar í sextán liða úrslit Bestu mörkin: Helena hélt að Þóra hefði allt aðra skoðun á þessu Ítalíudvölin tók á andlegu hliðina: „Vil finna gleðina aftur“ Uppgjörið: ÍBV - Víkingur 3-0 | Eyjamenn flugu áfram Mosfellingar fundu markaskóna og Fylkismenn orðnir níu fyrir hálfleik Fimmtán ára og skoraði í fyrsta byrjunarliðsleiknum í efstu deild Segir að öllum hafi verið sama um kvennaliðið í KR Uppbótartíminn: „Draumar eru til þess að stefna hátt“ „Þetta var skrýtinn leikur“ „Höfum afsannað allar spár sem hafa komið og ætlum að halda því áfram“ „Hugur minn er bara hjá henni“ Sjá meira