Mögnuð endurkoma skilaði Al-Nassr í Meistaradeildina Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 22. ágúst 2023 19:31 Cristiano Ronaldo og félagar voru aðeins tveimur mínútum plús uppbótartíma frá því að missa af sæti í Meistaradeild Asíu. Mohammed Saad/Anadolu Agency via Getty Images Sádiarabíska félagið Al-Nassr, með stjörnur á borð við Cristiano Ronaldo og Sadio Mané innanborðs, vann sér inn sæti í Meistaradeild Asíu er liðið vann magnaðan 4-2 sigur gegn Shabab Al-Ahli Dubai frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum í kvöld.
Anderson Talisca kom Al-Nassr yfir strax á 11. mínútu leiksins áður en Yahya Alghassani jafnaði metin fyri Al-Ahli sjö mínútum síðar og sá til þess að staðan var jöfn í hálfleik, 1-1. Alghassani skoraði svo annað mark sitt á fyrstu mínútu seinni hálfleiks og kom Al-Ahli í forystu. Þrátt fyrir að skapa sér nóg af færum gekk illa fyrir leikmenn Al-Nassr að koma boltanum í netið og lengi vel leit út fyrir að liðið væri að falla úr leik. Það var ekki fyrr en á 88. mínútu að liðinu tókst loksins að jafna metin þegar Sultan Al Ghannam skoraði annað mark liðsins. Við það opnuðust allar flóðgáttir og Anderson Talisca kom Al-Nassr yfir með marki á fimmtu mínútu uppbótartíma áður en Marcelo Brozovic gulltryggði sigurinn tveimur mínútum síðar eftir stoðsendingu frá Cristiano Ronaldo. Al-Nassr er því á leið í Meistaradeild Asíu á kostnað Shabab Al-Ahli Dubai sem situr eftir með sárt ennið.
Sádiarabíski boltinn Mest lesið Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Sport Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Enski boltinn Úlfarnir unnu United aftur Enski boltinn Segir Akureyri á hjara veraldar og varð hugfanginn í Sjallanum Sport Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Enski boltinn Kallaði sig hálfvita eftir áreksturinn Formúla 1 ÍA og Vestri mætast inni Íslenski boltinn Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Enski boltinn Piastri sigraði í Jeddah og leiðir keppni ökumanna Formúla 1 Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Enski boltinn Fleiri fréttir Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold Bologna gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Inter Valverde bjargaði vondri viku Evrópumeistararnir fóru hamförum Daníel Leó með mikilvægt sigurmark á meðan Kolbeinn skoraði í tapi „Vinnur ekki leiki ef þú skorar ekki“ ÍA og Vestri mætast inni Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Hákon nær Meistaradeildinni en Mikael áfram í fallsæti Úlfarnir unnu United aftur Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Grýtti spjaldtölvu í jörðina þegar víti var ekki dæmt María lagði upp og fyrsta stigið komið í hús Losað um hlekki Jóns Dags sem lagði upp eftir tuttugu sekúndur Stefán Gísli fékk fimm ára samning hjá Val Ancelotti segir engin illindi milli sín og forsetans Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg McTominay hetja Napoli Fram og Þór Ak. áfram í bikarnum HK vann Lengjudeildarslaginn og fór áfram í bikarnum Dýrlingarnir nældu í stig og jöfnuðu slakasta árangur sögunnar Stórsigur Villa galopnar baráttuna um Meistaradeildarsæti City nálgast sæti í Meistaradeild Evrópu Tveir fimmtán ára með þrjú fyrir KR | Adam Ægir skoraði strax fyrir Val Blésu til veislu eftir brostna drauma í Mílanó Cecilía að landa silfri og Fanney mætt í markið Sjá meira