Þetta kemur fram í tilkynningu. Þar segir að umboðsmanni barna hafi borist erindi frá fulltrúum nemenda við Menntaskólann á Akureyri. Þar lýsi nemendur yfir óánægju sinni með skort á samráði við nemendur vegna sameiningar MA og VMA.
Í bréfi umboðsmanns til Ásmundar kemur fram að mat á því sem er börnum fyrir bestu eigi ávallt að liggja til grundvallar ákvarðanatöku af hálfu hins opinbera og að slíkt mat eigi að framkvæma áður en ráðist sé í aðgerðir sem varði börn með einum eða öðrum hætti. Þá kemur jafnframt fram að hluti af slíku mati sé að veita börnum tækifæri til þess að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og að réttmætt tillit sé tekið til skoðana þeirra.
„Það er réttur barna að vera höfð með í ráðum við skipulag menntunar og skylda stjórnvalda að veita þeim raunverulega tækifæri til þess að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og hafa áhrif,“ segir í tilkynningu umboðsmanns.
Þá óskaði umboðsmaður eftir upplýsingum um það hvort mat hafi verið lagt á bestu hagsmuni barna við ákvarðanatöku um sameiningu Menntaskólans á Akureyri og Verkmenntaskóla Akureyrar. Hvort nemendur hafi fengið tækifæri til þess að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og hvort samráð hafi verið haft við nemendur og þá með hvaða hætti.