Skoðun

Flokkun úr­gangs við heimili gengur vonum framar!

Valdimar Víðisson skrifar

Þann 1. janúar sl. tóku gildi ný lög í úrgangsmálum. Þessar lagabreytingar hafa verið kallaðar hringrásarlögin en markmið laganna snýst aðallega um að draga úr myndun úrgangs og stuðla að myndun hringrásarhagkerfis hér á landi. Stærstu breytingarnar fyrir almenning snúa að meðhöndlun úrgangs við heimili en nú þurfa öll heimili að flokka pappír, plast, matarleifar og svokallaðan blandaðan úrgang sem ekki er hægt að endurvinna. Þeir sem ekki vita hvað á nákvæmlega að fara í blandaðan úrgang geta nálgast þær upplýsingar á heimasíðu SORPU. Auk þessara fjóra flokka við heimili þá ber okkur einnig að flokka textíl, málma, gler og spilliefni sem við förum þá með á grenndarstöðvar og endurvinnslustöðvar.

Sveitarfélög hófu innleiðingu á þessu breytta verklagi í samræmi við ný lög í upphafi árs. Hér á höfuðborgarsvæðinu hefur innleiðing gengið vonum framar. Sveitarfélög hafa staðið vel að upplýsingagjöf til íbúa og einnig komið tunnum vel og örugglega til þeirra. Starfsmenn sveitarfélaga eiga hrós skilið fyrir hversu vel hefur verið staðið að þessu. Í raun unnið þrekvirki á ekki lengri tíma en þetta. Innleiðingu er ekki lokið því enn á víðast hvar eftir að koma upp grenndarstöðvum fyrir málma og gler.

Árangur hér á höfuðborgarsvæðinu í magntölum

Þegar borin eru saman tímabilin frá janúar – ágúst í ár og á síðasta ári kemur í ljós að íbúar höfuðborgarsvæðinu hafa heldur betur tekið vel í þessar breytingar. Það ber að hafa í huga að tunnur fóru fyrst að berast íbúum höfuðborgarsvæðisins í maí.

  • Magn blandaðs úrgangs hefur dregist saman um rúmlega 2500 tonn.
  • Tæplega 1200 tonn af matarleifum hafa safnast við heimili íbúa.
  • Plastsöfnun við heimili hefur tæplega tvöfaldast, var 580 tonn á tímabilinu.
  • Pappír og pappi hefur dregist saman um 250 tonn á tímabilinu. Stór áhrifaþáttur er væntanlega að útgáfu Fréttablaðsins hefur verið hætt.

Þetta er algjörlega frábær árangur. Næsta verkefni er svo að byggja upp og efla grenndarstöðvar. Hafa losun þeirra samræmda og skilvirka. Einnig að tryggja að umgengni sé góð og það verður meðal annars gert með því að núna verður skylda að hafa skynjara í gámunum á grenndarstöðvum sem láta vita þegar þeir eru að verða fullir.

Með hringrásarlögunum hefur orðið vitundarvakning meðal landsmanna. Við erum að standa okkur vel eins og magntölurnar sýna. Og við ætlum að sjálfsögðu að gera enn betur.

Verum öll áfram samtaka í þessu verkefni.

Höfundur er stjórnarformaður SORPU og formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×