Í umfjöllun Reuters um málið kemur fram að frönsk stjórnvöld hafi meinað fyrirtækinu að selja símana í landinu, þar sem þeir hafi ekki staðist geislunarprófanir. Frönsk yfirvöld telja símana gefa frá sér of mikla geislun, en þó ekki að svo miklu marki að það sé skaðlegt mönnum.
Vísindamenn hafa gert margskonar rannsóknir á geislun af völdum síma undanfarna áratugi til að meta áhrif hennar á heilsufar manna. Í umfjöllun bandaríska miðilsins kemur fram að ekki hafi tekist að sýna fram á áhrif geislunar úr farsímum á heilsu manna.
Frakkar prófi símana á annan hátt en aðrir
Forsvarsmenn Apple hafa dregið niðurstöðurnar í efa og bent á að síminn hafi áður staðist prófanir alþjóðastofnana víðsvegar um heim. Síminn kom fyrst út fyrir þremur árum síðan en Apple gefur út nýja týpu af snjallsímanum á árs fresti. Einungis örfáir dagar eru síðan fyrirtækið svipti hulunni af iPhone 15.
Þrátt fyrir afstöðu sína hyggst Apple uppfæra stýrikerfi símans sem fyrirtækið segir að muni gera símanum kleyft að standast próf franskra stjórnvalda. Í umfjöllun Reuters segir að frönsk stjórnvöld prófi símana á annan hátt en stjórnvöld í öðrum löndum.
Það hafi þó ekki komið í veg fyrir áhyggjur stjórnvalda í öðrum Evrópulöndum. Yfirvöld í Belgíu hyggjast gera sínar eigin prófanir, á meðan yfirvöld í Þýskalandi hafa sagst hafa sett sig í samband við frönsk stjórnvöld í því skyni að finna lausn á málinu á vettvangi Evrópusambandsins.