Í október næstkomandi munu íbúar í Tálknafjarðarhreppi og Vesturbyggð kjósa um það hvort að þessi tvö sveitarfélög sameinist í eitt. Verði tillagan samþykkt verður til nýtt sveitarfélag á sunnanverðum Vestfjörðum með þrjá aðskilda byggðakjarna við þrjá aðskilda firði sem tengjast með fjallvegum.
Til að komast á milli Patreksfjarðar og Tálknafjarðar þarf að keyra yfir Mikladal í 370 metra hæð yfir sjávarmáli og ef á að fara áfram til Bíldudals þarf að keyra yfir Hálfdán í 500 metra hæð. Það segir sig sjálft að þessir fjallvegir eru farartálmar fyrir íbúa í nýju sameinuðu sveitarfélagi og eru hindranir sem standa í vegi fyrir einu heildstæðu samfélagi mannlífs og atvinnulífs.
Sveitarstjórnir sveitarfélaganna beggja hafa margoft ályktað um mikilvægi þess að ráðist verði í gerð jarðganga milli þessara þriggja fjarða og sameiginleg forgangsröðun Vestfirðinga í samgöngumálum styður þá kröfu. Þá hefur það komið skýrt fram á íbúafundum í aðdraganda sameiningarkosninga að fólk sem er búsett á svæðinu sér jarðgöng á milli Arnarfjarðar, Tálknafjarðar og Patreksfjarðar sem forsendu fyrir því að sameinað sveitarfélag geti vaxið og dafnað til framtíðar. Vestfirðingar þurfa Suðurfjarðagöng.
Í byrjun sumars lagði innviðaráðherra fram tillögu að samgönguáætlun fyrir árin 2024 til 2038 og þar glöddumst við á sunnanverðum Vestfjörðum mjög að sjá að loksins voru Suðurfjarðagöng komin á blað. G
leðin var þó fljót að súrna þegar kom í ljós að göngin náðu ekki inn í fyrsta áfanga áætlunarinnar. Það má einfaldlega ekki bíða með viðhlítandi rannsóknir og forhönnun á þessu mannvirki sem öllu máli skiptir fyrir fólk og fyrirtæki á svæðinu, eins og skýrt kemur fram í umsögn beggja sveitarfélaganna um samgönguáætlunina.
Við Íslendingar erum eftirbátar annarra Evrópuþjóða í uppbyggingu vegakerfis og við sem búum í dreifðari byggðum landsins finnum einna helst fyrir því. Á meðan við horfum á frændfólk okkar í Færeyjum vera með sex jarðgangaframkvæmdir í gangi á sama tíma er engar slíkar í gangi á Íslandi. Það mætti kannski taka upp símann og fá upplýsingar hvernig þessir næstu nágrannar okkar fara að, því við þurfum svo sannarlega að gera betur.
Við treystum því að í umfjöllun Alþingis um samgönguáætlun á komandi vetri verði þetta lagfært, strax verði hafist handa við rannsóknir og hönnun svo að hægt verði að hefja framkvæmdir sem fyrst. Vinnum saman að því að gera Suðurfjarðagöng að veruleika.
Ólafur Þór Ólafsson, sveitarstjóri Tálknafjarðarhrepps
Þórdís Sif Sigurðardóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar