Skoðun

Hljóð og mynd fara ekki saman hjá stjórn­völdum varðandi ferða­þjónustu

Jóhannes Þór Skúlason skrifar

Ferðaþjónusta hefur staðið undir einna stærstum hluta gjaldeyris- og verðmætasköpunar þjóðarbúsins um árabil. Þegar litið er til mikilvægis ferðaþjónustu í þjóðhagslegu tilliti er ljóst að útgjöldum ríkissjóðs til málefnasviðs atvinnugreinarinnar er verulega ábótavant.

Sú staðreynd kristallast í nýútkomnu frumvarpi til fjárlaga árið 2024 þar sem sjá má breytingar á úthlutun fjár til málefnasviða á milli ára.

Útgjöld til málefnasviðs sjávarútvegs og fiskeldis aukast um 6,1% á milli ára, þar sem þau fara úr um 6,9 milljörðum króna í 7,3. Útgjöld til málefnasviðs landbúnaðar lækka um 0,2% á milli ára en standa í krónutölu enn í um 21 milljarði króna.

Útgjöld til málefnasviðs ferðaþjónustunnar lækka hins vegar um 11,3% á milli ára, úr 2,4 milljörðum niður í um 2,1 milljarð. Hvort sem litið er til krónutölu eða hlutfallslegrar breytingar á milli ára dregur ferðaþjónustan því enn og aftur stutta stráið í samanburði á milli atvinnugreina.

Á sama tíma er lögð til 2,7 milljarða aukning á tekjuöflun ríkissjóðs af ferðaþjónustu, umfram 1,5 milljarða endurupptöku gistináttaskatts, sem áformað er að ná fram með sértækri skattlagningu á atvinnugreinina.

Í nýútkomnum fjárlögum er aukin sértæk skattlagning því boðuð á ferðaþjónustu sem virðist ekki eiga að skila sér til málefnasviðs ferðaþjónustu til uppbyggingar þekkingar, innviða og verkefna í ferðaþjónustu sem stjórnvöld hafa sjálf kallað eftir.

Það er óskynsamleg aðferðafræði til að byggja upp sjálfbæra atvinnugrein til framtíðar.

Framtíðarsýn og úrlausn áskorana kostar fé

Stjórnmálamenn, bæði í ríkisstjórn og stjórnarandstöðu, hafa undanfarin ár ítrekað bent á ýmsar áskoranir sem ferðaþjónustan og samfélagið standa frammi fyrir. Þar má nefna betri dreifingu ferðamanna um allt landið og yfir árið, álag á helstu ferðamannastaði, innviði og náttúru, mikilvægi þess að auka framleiðni í greininni, mikilvægi þess að auka þekkingu á áhrifum greinarinnar á samfélagið og að auka þurfi verðmæti af hverjum ferðamanni frekar en að fjölga þeim.

Samtök ferðaþjónustunnar taka heilshugar undir að allt þetta eru mikilvæg verkefni.

Vandinn liggur í því að á sama tíma og stjórnmálamenn ræða mikilvægi þessa alls, virðist ekki vera vilji til staðar til að leggja fjármuni í þau verkefni á málefnasviði ferðaþjónustu sem nauðsynleg eru til að innviðir, náttúra og atvinnugreinin muni þróast í þá átt sem þeir vilja.

Hér fara því ekki saman hljóð og mynd, orð og gerðir.

Stjórnvöld eiga ekki í neinum vanda með að taka á móti þeim tekjum sem ferðaþjónustan skapar fyrir ríkissjóð, sveitarfélög og samfélagið í heild, sem eru verulega háar fjárhæðir. Þau virðast hins vegar ekki tilbúin til að kosta því til sem þarf til að stuðla markvisst að sjálfbærri þróun atvinnugreinarinnar til lengri tíma litið, í samræmi við þau markmið og framtíðarsýn sem stjórnvöld hafa sjálf sett fram í Stefnuramma stjórnvalda um ferðaþjónustu til 2030.

Ef þróun sértækrar skattlagningar og gjaldtöku af ferðaþjónustu og útgjalda til málefnasviðs atvinnugreinarinnar verður áfram á þann veg sem liggur fyrir í fjárlagafrumvarpi næsta árs munu þessi markmið um úrlausn áskorana og framtíðarsýn ekki nást. Svo einfalt er það.

Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×