Skoðun

Viðunandi framfærsla og lífskjör

Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar

Ég býð mig fram til formanns ÖBÍ réttindasamtaka á aðalfundi samtakanna núna um helgina.

Fimmta áherslumálið mitt er viðunandi framfærsla og lífskjör

Fyrsta heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna er „Engin fátækt“, en þar segir að útrýma eigi fátækt í allri sinni mynd, alls staðar. Aðalinntak heimsmarkmiðanna er að engir einstaklingar eða hópar verði skildir eftir.

Nú stendur yfir mikil vinna við nýtt kerfi almannatrygginga. Það er mikilvægt að rödd fatlaðs fólks sé áberandi, með tækifæri þeirra sem leiðarljós. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks á að vera rauður þráður í gegnum þá vinnu.

Framfærsla er grundvöllur lífs. Staðan er sú að margt fatlað fólk og öryrkjar, fær ekki að vinna eftir getu og áhuga án þess að verða fyrir skerðingum. Það að veikjast, fatlast eða fæðast fatlaður er ekki skömm þess sem hana ber og er örorka hvorki valkvæð né eftirsóknarverð. Fatlað fólk og öryrkjar eiga að hafa sömu tækifæri til að lifa mannsæmandi lífi til jafns við aðra. Við getum ekki sætt okkur við sem samfélag, aukna fátækt og stéttaskiptingu þar sem æ fleiri geta til dæmis ekki boðið börnum sínum þátttöku í íþrótta-, félags- eða tómstundastarfi.

Við getum ekki kallað samfélagið okkar velferðar- og jafnréttissamfélag nema allir njóti mannsæmandi lífs og enginn sé skilinn eftir í í fátækt.

Ég vil leiða þá vinnu þar sem við sýnum stjórnvöldum fram á að betri lausnir eru fyrir hendi. Að við tryggjum rétt fatlaðs fólks og öryrkja til viðunandi lífskjara og til sífellt batnandi lífsskilyrða.

Fimm áherslumál mín í formannskjöri ÖBÍ

  • Íslenskt stjórnvöld þurfa að grípa fyrr inn í hjá fötluðum börnum. Burt með biðlista og tryggjum að enginn dragist aftur úr.
  • Hvergi verði gefið eftir í þeirri kröfu að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
  • Besti árangur næst með góðri samvinnu og samtali við stjórnvöld, stofnanir og samfélagið. Við stöndum á staðreyndum og stefnumálum – en ekki í stríði. ÖBÍ þarf að starfa vel með sínum aðildarfélögum og hlusta á þeirra sjónarmið.
  • Inngilding fatlaðs fólks á vinnumarkað er lykilatriði – með atvinnulífi og verkalýðshreyfingunni vinnum við gegn fordómum og með aukinni þátttöku fatlaðs fólks í samfélaginu. Í okkur felast tækifæri og ávinningur.
  • Framfærsla er grundvöllur lífs. Við getum ekki sætt okkur við sem samfélag, aukna fátækt og stéttaskiptingu sem hefur áhrif á öll.

Höfundur er lögfræðingur og í kjöri til formanns ÖBÍ réttindasamtaka.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×