Læknar í Gasa vara við því að þúsundir gætu dáið þegar matar- og orkubirgðir sjúkrahúsa klárast á næstu dögum. Matur og vatn er af skornum skammti í Palestínu eftir að Ísraelar settu svæðið í herkví og skrúfuðu fyrir vatn, rafmagn og stöðvuðu vöruflutninga til landsins.
Ísraelar fyrirskipuðu um milljón íbúum í norðurhluta Gasa að rýma svæðið. Fyrirmæli sem alþjóðastofnanir á borð við Sameinuðu þjóðirnar, Rauða krossinn og Amnesty International hafa fordæmt. Rýmingarnar hafa bætt gráu ofan á svart í þeirri mannúðarkrísu sem hefur myndast vegna vatns- og matarskorts í landinu.
Að sögn Ísraela hafa um 600 þúsund Palestínumenn þó yfirgefið norðurhlutann. Slíkur fjöldi fólks á vergangi mun eflaust hafa enn verri áhrif á ástandið á Gasasvæðinu.
En það er ekki á allra færi að flýja. Sjúklingar og særðir einstaklingar á spítölum í landinu hafa ekki getað flúið. Ahmed Al-Mandhari, svæðisstjóri WHO, segir að einhver sjúkrahús hafi getað komið hreyfanlegum sjúklingum til suðurhluta Gasa en það sé á færi fæstra.
Sjúkrahúsin að verða uppiskroppa með eldsneyti
Sjúkrahús í Gasa munu með óbreyttu sniði klára eldsneyti í rafala til að viðhalda rafmagni á næstu dögum. Sameinuðu þjóðirnar segja að það muni stofna lífi þúsunda sjúklinga í hættu. Loka þurfti eina kjarnorkuveri Gasa eftir að Ísrael lokuðu Gasasvæðinu algjörlega eftir árás Hamas.
Gjörgæslan á Nasser-sjúkrahúsi í bænum Khan Younis er troðfull af særðu fólki, aðallega börnum undir þriggja ára aldri. Þá eru mörg hundruð manns á sjúkrahúsinu með alvarlega áverka eftir sprengjuárásir.

Að sögn Dr. Mohammed Qandeel er búist við að eldsneyti á spítalanum klárist á mánudag. Það þýðir að 35 einstaklingar í öndunarvél og sextíu sem eru í himnuskiljun verða í bráðri lífshættu.
Dr. Hussam Abu Safiya, yfirlæknir á barnalækningadeild við Kamal Adwan-spítala í norðurhluta Gasa, sagði að starfsfólk spítalans hefðu haldið kyrru fyrir þrátt fyrir fyrirmæli Ísraela. Þar væru sjö nýburar tengdir við öndunarvélar. Brottflutningur myndi þýða „dauði fyrir þá og aðra sjúklinga í okkar umsjá,“ sagði Safiya við AP.
Forsvarsmenn Shifa-spítala, stærsta spítalans í Gasaborg, greindu frá því að þeir myndu grafa um hundrað lík í fjöldagröf í neyðarskyni eftir að líkhús spítalans fylltist. Tugir þúsunda hafa leitað skjóls á svæði spítalans.
Orkumálaráðherra Ísrael, Israel Katz, sagði í yfirlýsingu að búið væri að koma vatnssambandi á að nýju á einu tilteknum stað í Gasa. Talsmaður hans sagði að sá staður væri fyrir utan Khan Younis. Fólk í Gasa segist ekki enn hafa séð merki þess að búið væri að koma vatnssambandi á að nýju.

Bíða við landamærin
Ísraelski herinn hefur komið sér fyrir við landamærin að Gasaströndinni og undirbúa nú árás inn í Gasasvæðið sem á að þeirra sögn að útrýma Hamas fyrir fullt og allt. Ísraelar njóta auk þess stuðnings bandarískra herskipa við Miðjarðarhaf.
Þá hafa stöðugar loftárásir dunið á Gasaströndinni eftir að Hamas réðust inn í Ísrael fyrir viku síðan og er búið að jafna heilu hverfin þar við jörðu.
Heilbrigðisráðuneyti Palestínu segir að 2.670 Palestínumenn hafi verið drepnir og 9.600 hafi særst frá því átökin hófust. Það eru fleiri en létust í Gasastríðinu árið 2014 og gerir núverandi stríð það mannskæðasta af öllum fimm Gasastríðunum.
Meira en 1.400 Ísraelar, meirihluti þeirra almennir borgar, voru drepnir í árás Hamas inn í Ísrael þann 7. október síðastliðinn. Samkvæmt Ísraelum var að minnsta kosti 155 Ísraelum rænt af Hamas og þeir teknir inn í Gasa í árásinni. Stríðið er því líka það mannskæðasta fyrir Ísrael frá Yom Kippur-stríðinu árið 1973 þar sem þeir börðust við Egypta og Sýrlendinga.
