Hægt verður að fylgjast með fundinum í spilaranum að neðan.
Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hafi skipað starfshópinn í október 2022, í samráði við matvælaráðherra.
Hópurinn hefur nú skilað ráðherra tillögum sínum og verða þær kynntar á Hótel Natura, í dag þriðjudaginn 17. október kl. 11:30.
Starfshópinn skipuðu:
- Ármann Kr. Ólafsson, fyrrverandi bæjarstjóri í Kópavogsbæ, sem er formaður hópsins,
- Gunnar Alexander Ólafsson, sérfræðingur,
- Sigríður Gísladóttir, dýralæknir.