Konurnar söfnuðust saman við Hótel Selfoss í hádeginu, sumar með kröfuspjöld og lögðu svo af stað til Reykjavíkur með rútum. klukkan hálf eitt.
„Bara áfram við. Það verður svakalegt stuð, sem byrjar strax í rútunni held ég,” segir Marta Katarzyna Kuc ein af konunum en hún býr á Selfossi.
„Við erum bara með hópa, sem eru bara mjög veikir. Það eru ný komnar skýrslur, sem segja að ræstingafólk sé þrælastétt, það er megnið konur og það er bara of mikill launamunur enn þá,” segir Halldóra Sveinsdóttir, formaður Bárunnar stéttarfélagsins.

„Já, það hafa kannski einhverjir sofnað á verðinum en ég vona að þeir vakni bara og taki aðeins til í sínum ranni,” segir Guðrún Elín Pálsdóttir, formaður Verkalýðsfélags Suðurlands.
„.Já, ég vona að þetta skili okkur útrýmingu á karla og kvennastörfum, að við getum farið og unnið saman því að öll störf þurfa á báðum kynjum að halda,” segir Árný Erla Bjarnadóttir formaður Foss stéttarfélags.
Árni segir megin þorra kvenna á Íslandi ekki hafa það slæmt. Þó sé hluti sem hafi það alls ekki gott.
Þó að íslenskar konur hafi það betra en margar kynsystur þeirra í heiminum þá sé eðlilegt að sækjast eftir jafnrétti.
„Við höfum það ekkert slæmt en við þurfum jafnrétti,” segir Sesselja Guðmundsdóttir, íbúi í Hveragerði, sem nýtti sér rútuferðina í dag.

Eru þetta bara einhverjir karlpungar, sem stjórna hér?
„Já, það er svolítið of mikið en það er líka svolítið okkur að kenna. Við erum ekki nógu frekar að troða okkur áfram, en þetta er að koma,” bætir Sesselja við.
Og þessi skilaboð komu frá konunum inn í rútunum.
„Áfram stelpur”.