„Sendinefnd Íslands á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna kallaði skýrt eftir mannúðarhléi til að tryggja tafarlausa mannúðaraðstoð til óbreyttra borgara á Gaza á neyðarfundi í gærkvöldi,“ skrifar Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra á Facebook í dag.
Jórdanía lagði í gær fram ályktun um mannúðarhlé á Gasa og 45 lönd studdu hana óbreytta. Kanada lagði til breytingu á tillögunni, sem 88 aðildarríki studdu, en þar var lögð áhersla á fordæmingu Hamas. Breytingartillagan náði ekki fram að ganga.
Upphaflega tillagan var því samþykkt að lokum og greiddu 120 lönd atkvæði með tillögunni. Fjórtán greiddu atkvæði á móti og 45 sátu hjá, þar á meðal Ísland. Noregur var eitt Norðurlanda sem greiddi atkvæði með tillögunni.
Skýr krafa um að farið verði að lögum
Bjarni segir miður að ekki hafi náðst samstaða á þinginu um að fordæma hryðjuverk.
„Þetta breytir þó ekki skýrri afstöðu Íslands um tafarlaust mannúðarhlé, að komið verði á friði og byggt á tveggja ríkja lausninni. Ísland gerir skýra kröfu til Ísraels um að farið sé að mannúðarlögum.
Fyrir þessu verður áfram talað af fullum þunga. Hvert dauðsfall meðal almennra borgara er einu dauðsfalli of mikið,“ skrifar Bjarni.