Prestar nauðguðu helming barnanna
Umboðsmaður almennings kynnti niðurstöður rannsóknar sinnar í gær en hún hefur staðið yfir í 18 mánuði. Í rannsóknarskýrslunni, sem telur 779 blaðsíður, kemur fram að samkvæmt umfangsmikilli könnun á meðal núlifandi Spánverja á aldrinum 18 til 90 ára, hefur 1,13% af spænsku þjóðinni orðið fyrir kynferðisofbeldi af hálfu kirkjunnar manna. Það jafngildir því að 440.000 börn hafi verið beitt ofbeldi. Þar af hafa 220.000 börn verið beitt kynferðislegu ofbeldi af prestum og hinn helmingurinn af leikmönnum kirkjunnar, flest af kennurum, en kirkjan rekur þúsundir skóla í landinu. Úrtak könnunarinnar voru 8.000 manns.
Meirihluta barnanna voru drengir, eða um 65%.

Viðtöl við tæplega 500 fórnarlömb kirkjunnar
Í skýrslunni eru rakin viðtöl við tæplega 500 fórnarlömb kirkjunnar manna og segir umboðsmaður almennings að ljóst sé að lífi og tilveru fjölda barna hafi bókstaflega verið rústað af þessum körlum sem falið var að gæta barnanna og velferðar þeirra. Hann leggur til við stjórnvöld að komið verði á fót sjóði sem falið verði að greiða fórnarlömbum kirkjunnar bætur.
Hvergi í hinum kaþólska heimi hefur verið upplýst um viðlíka fjölda fórnarlamba kirkjunnar. Fyrir tveimur árum var sambærileg könnun gerð opinber í Frakklandi og þar reyndust fórnarlömbin vera um 330.000 börn.
Kirkjan hefur alltaf hafnað ásökunum um ofbeldi
Kaþólska kirkjan á Spáni hefur um langt árabil barist gegn því að kynferðislegt ofbeldi innan kirkjunnar verði rannsakað og borið því við að tilfellin séu svo fá að ekki taki því að rannsaka það. Umboðsmaður almennings sagði á fundinum í gær þegar skýrslan var kynnt að margir biskupar kirkjunnar hafi verið afar tregir til samstarfs við þessa rannsókn. Biskuparáð kaþólsku kirkjunnar hefur boðað til fundar á mánudag til að ræða skýrsluna.