Skoðun

Hagur brota­þola ekki á blaði

Drífa Snædal skrifar

Það ætti að vera eðlilegt að taka mið af reynslu brotaþola í kynferðisbrotamálum (sem öðrum) og gæta þess að gera ekki illt verra. Að verða fyrir kynferðisofbeldi getur haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir fólk og jafnvel alla ævi. Algengast er að brotaþolar upplifi skömm og sektarkennd, ofbeldið hafi áhrif í nánum samskiptum og sjálfskaðandi hegðun í kjölfar ofbeldis er raunveruleiki margra.

Í okkar samfélagi er mjög erfitt að fá viðurkenningu á að brot hafi átt sér stað og enn erfiðara að fá einhvers konar réttlæti. Reyndar eigum við sem samfélag mjög langt í land að viðurkenna og virða brotaþola, hvað þá að taka tillit til þeirra, hér eru örfá dæmi úr samfélagsumræðu síðustu vikna sem endurspegla þann veruleika:

1. Styttan af séra Friðrik

Sögusagnir og frásagnir af barnaníði séra Friðriks eru nú á allra vörum og vitnisburðir um slíkt berast víða að. Það er stungið á kýli og úr kemur gusa – eins og oft er í svona málum. Umræðan um styttuna og önnur minnismerki fylgja í kjölfarið og það er merkilegt að verða vitni að því að önnur sjónarmið en líðan brotaþola eru í forgrunni í þeirri umræðu. Sú vanlíðan sem það hlýtur að hafa valdið og veldur brotaþolum að hafa þessa styttu fyrir augum á að vera aðal málið í umræðunni. Það hlýtur að auka vanlíðan og viðhalda afleiðingum fyrir brotaþola, sérstaklega ef hugsanlegir (líklegir) brotaþolar hafa ekki sótt sér aðstoð við að vinna úr ofbeldinu. Er mikilvægara að hampa minningu hans en að taka tillit til líðan brotþola?

2. Rannsóknir á brotaþolum

Siðanefnd Sjúkrahússins á Akureyri virðist hafa gefið leyfi til starfsmanns sjúkrahússins, sem einnig er meistaranemi til að hafa samband við brotaþola sem sótti aðstoð á neyðarmóttökuna. Brotaþoli hefur lýst því í fjölmiðlum hvað þetta kom illa við hana, ýkti afleiðingarnar af nauðguninni og kom í veg fyrir framfarir í líðan. Þarna virðast hagsmunir meistaranema hafa verið teknir framar hagsmunum einstaka brotaþola og grundvallarkröfur vísindarannsókna sniðgengnar en í lögum segir að þær skuli byggjast á virðingu fyrir mannhelgi þátttakenda. Líðan brotaþola hefur augljóslega ekki verið þarna í forgrunni. Eru rannsóknarhagsmunir stærri en líðan brotaþola og afleiðingar fyrir hann?

3. Leikverk um Heiðar snyrti

Borgarleikhúsið áætlar að frumsýna leikverkið „Kvöldstund með Heiðari snyrti“ í janúar á næsta ári og nú þegar er hafist handa við að auglýsa verkið. Á facebooksíðu leikskáldsins lýsir hver um annan þveran áhuga á að sjá verkið, þar með er Heiðar sjálfur og fjölskylda hans, en leikskáldið var í samráði við Heiðar við vinnslu verksins. Heiðar hefur hlotið dóm fyrir að brjóta á ungum mönnum og í dómskjölum eru fleiri ungir menn sem lýsa hvernig hann braut á þeim. Þetta er ekki orðrómur, þetta er staðfest með dómi. Brotaþolar eru mjög ósáttir við leikverkið og hafa komið því á framfæri við Borgarleikhúsið. Það skiptir engu máli, líðan brotaþola er ekki viðurkennd og áfram heldur vinnan. Brotaþolar hins vegar upplifa vanvirðingu gagnvart sér, alvarleika brotanna og afleiðingum. Er mikilvægara að þjóna listinni en að virða líðan brotaþola?

Þetta eru bara þrjú dæmi úr umræðu síðstu daga um hvernig líðan brotaþola er að engu gerð, smættuð, ekki tekið mark á eða ekki sett í forgrunn í umræðu eða við ákvarðanatöku. Það ætti hins vegar að vera það fyrsta sem umræðan snýst um – alltaf.

Höfundur er talskona Stígamóta.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×