Skoðun

Hættum við­skiptum við Rapyd sem styður morð á sak­lausu fólki

Björn B. Björnsson skrifar

Við horfum öll með hryllingi á svívirðilegar árásir Ísraelshers á varnarlaust fólk á Gasa og Vesturbakkanum þar sem vopnlaust fólk er drepið í þúsundavís og heimili, skólar og aðrir innviðir lagðir í rúst með sprengjuregni frá einu öflugasta herveldi heims.

Almenningur á Íslandi styður kröfu um tafarlaust vopnahlé eins og almenningur í Bandaríkjunum og flestum löndum heims gerir. Það sama verður ekki sagt um þá sem almenningur kaus til að fara með völdin í sínu nafni. Valdhafarnir hafa slegið skjaldborg um Ísrael og í því skjóli heldur þessi hryllingur áfram eins og ekkert sé.

En hvað getum við gert? Jú, við getum þrýst á yfirvöld á Íslandi að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael og beita landið viðskiptaþvingunum, eins og við gerðum réttilega við Rússa eftir innrás þeirra í Úkraínu. En það er ólíklegt að ríkisstjórn Íslands geri nokkurn skapaðn hlut.

Þá er komið að okkur. Við getum beitt ísraelsk fyrirtæki sem styðja manndrápin á Gasa þrýstingi með því að beina viðskiptum okkar annað. Hér er hlekkur á síðu með upplýsingum um fyrirtæki sem hvatt er til sniðgöngu á vegna þessa og ástæður þess að þau eru á listanum: https://boycott.thewitness.news

Ísraelska fyrirtækið Rapyd er umsvifamikið í færsluhirðingu á Íslandi eftir að það keypti Valitor af Arion banka árið 2021. Fyrirtækið er með starfsemi í landránsbyggðum Ísraelsmanna sem eru brot á alþjóðalögum og samþykktum Sameinuðu þjóðanna.

En ekki nóg með það. Fyrirtækið hefur lýst opinberlega stuðningi sínum við helförina sem nú stendur yfir á Gasa. Forstjóri og aðaleigandi fyrirtækisins segir engu skipta hver kostnaðurinn af stríðinu verði í drápum á óbreyttum borgurum. Takk fyrir.

Viljum við senda þessum manni og fyrirtæki hans peninga í hvert skipti við notum posa? Ég segi nei takk. En til þess að við fáum ekki nafn þessa fyrirtækis upp á skjáinn í hvert sinn sem við notum posana þurfa þau fyrirtæki sem skipta við Rapyd að skipta um færsluhirði. Það eru íslensk fyrirtæki sem gera það sama og Rapyd svo það er ekkert vandamál að skipta. En til að það gerist þurfum við látum þau vita að við viljum ekki viðskipti við Rapyd.

Hringjum í og skrifum fyrirtækjum sem skipta við Rapyd og hvetjum þau til að hætta þeim viðskiptum. Beinum viðskiptum okkar til fyrtækja sem ekki skipta við Rapyd og deilum upplýsingum um þessi fyrirtæki á samfélagsmiðlum. Þannig getum við þrýst á að gengdarlaus morð á börnum og saklausu fólki taki einhvern enda.

Höfundur er áhugamaður um mannréttindi.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×