Í tilkynningu segir að það sem einkenni tilnefningarnar í ár sé gríðarleg fjölbreytni. Mikil gróska ríki í íslensku tónlistarlífi á sviðið popps, rokks, Jazz, teknós, hip hops og þjóðlaga og að tilraunatónlist sé hampað.
Stór hluti þeirra sem dómnefndin hefur tilnefnt var að gefa út fyrstu plötuna.
Þeir sem eru tilnefndir til Kraumsverðlaunanna 2023 eru:
Apex Anima - ELF F O
Daniiil - 600
Elín Hall - Heyrist í mér
Eva808 - Öðruvísi
ex.girls - Verk
Flexi lyfseðill - behov
Flyguy - Bland í poka
Ingibjörg Elsa Turchi - Stropha
Intr0beatz - Fókus
Jadzia - Hidden Universe EP
Jelena Ciric - Shelters Two
Kári - Palm Trees In The Snow
Laufey - Bewitched
Lúpína - Ringluð
MSEA - Our Daily Apocalypse Walk
Neonme - Premiere
Skorri - Go Ahead!
Spacestation - Bæbæ
Sunna Margrét - Five Songs For Swimming
Xiupill - Pure Rockets
Kraumsverðlaunin eru árleg plötuverðlaun Auroru velgerðarsjóðs og er þeim ætlað að kynna og styðja við plötuútgáfu íslenskra listamanna og hljómsveita. Þau voru fyrst veitt árið 2008.

Kraumsverðlaunin 2023 eru valin af níu manna dómnefnd skipuð fólki með margvíslega reynslu af því að fjalla um, spila og vinna með íslenska tónlist í fjölmiðlum og á öðrum vettvangi. Dómnefndina skipa; Árni Matthíasson (formaður dómnefndar), Arnar Eggert Thoroddsen, Helga Þórey Jónsdóttir, Lovísa Rut Kristjánsdóttir, María Lilja Þrastardóttir, Óli Dóri, Rósa Birgitta Ísfeld, Trausti Júlíusson og Þorbjörg Roach Gunnarsdóttir.