Hér erum við að tala um svínin á svínabúinu Laxárdal í Skeiða og Gnúpverjahreppi þar sem eru um 200 gyltur. Til að lífga upp á jólastemminguna hefur jólaskrauti verið komið fyrir í nokkrum stíum og svínin fá meira að segja jólasveinahúfu þegar svo háttar til.
Heiðurinn af þessu á svínahirðir búsins, Sandra frá Póllandi, sem hefur búið á Íslandi í sjö ár og elskar fátt meira en svínin í Laxárdal.
„Grísirnir hafa sérstaklega gaman af því að leika sér með jólakúlurnar og svo fá gylturnar jólahúfur og það er allskonar jólastemming í gangi,” segir Sandra.
Sandra segir svín mjög skemmtileg.
„Já þau eru öll mjög krúttleg og falleg og þeim finnst gaman að leika sér og að fá knús frá mér. Lyktin af grísunum er líka ótrúlega góð.”

Sandra með mikið af húðflúrum en það er þó ekkert flúr af svíni en stendur til að bæta úr því eða?
„Já, já, ég ætla að bæta úr því í maí því þá ætla ég að fá mér svínatattú“, segir hún hlæjandi.
Það er ekki hægt að kveðja svínin í Laxárdal án þess að heilsa upp á göltinn Brand, sem er 350 kíló og uppáhalds göltur búsins enda fær hann reglulega að vera með jólasveinahúfuna. Brandur er einstaklega gæfur og finnst fátt betra en að láta klappa og klóra sér.
