Skoðun

Katrín Jakobs­dóttir, Bjarni Bene­dikts­son, Guð­rún Haf­steins­dóttir, Guð­mundur Ingi Guð­brands­son

Margrét Kristín Blöndal skrifar

Nú eru þeir orðnir fimm, sólarhringarnir, þar sem Palestínumenn með samþykkta fjölskyldusameiningu hafa hafst við í fimbulkulda í tjöldum fyrir utan Alþingi á Austurvelli til að minna ykkur á fjölskyldur sínar sem hafast við í tjöldum á götum Gaza sem sprengd hefur verið til heitasta helvítis af Ísraelsher á undanförnum þremur mánuðum. 

Fjölskyldur sem hafa nú þegar dvalarleyfi hérna eru ekki sóttar þótt þær búi við þær skelfilegustu og lífshættulegustu aðstæður sem hugsast getur. 

Inni í hlýju og vel búnu Alþingishúsinu er hins vegar ekki sála á ferli því þingmenn eru löngu farnir í kærkomið og langt jólafríi eftir langan og strangan vetur og hafa þeir væntanlega varið fríinu í hlýjum faðmi sinna fjölskyldna við mat og drykk og dýrmætar samverustundir um jólin. 

Opinberlega hefst ríkisstjórnin ekkert annað að en að fara fram og aftur í rólegheitum með ósannindi um þetta mál, þegar þau ættu að vera löngu búin að senda fulltrúa sinn að landamærastöðinni í Rafha og koma fjölskyldunum hingað í gegnum Egyptaland. Önnur ríki senda einfaldlega embættisfólk út til þess að tryggja framgang sameiningarmála. Daglega gera nágrannaþjóðir okkar Svíar og Norðmenn einmitt það og einnig Írar, Tyrkir og Serbar. 

Nei, ráðherrar ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur verja frekar dýrmætum tímanum, út á við, með því að ljúga hver í kapp við annan um þetta mál og verða sjálfum sér ítrekað til ævarandi hneisu og niðurlægingar með því að fara með síendurtekinn þvætting og rangfærslur um staðreyndir í bland við að lýsa yfir „skilningi“ á líðan fólksins. 

Það er okkur almenningi fullkomlega óskiljanlegt hvers vegna ríkisstjórnin kemur svona fram við fólk sem á líf sitt undir því að hún bregðist við. 

Bjarni Benediktsson hélt því fram í viðtali við Vísi þann 12. desember að ráðuneyti hans hafi sett fjölskyldusameiningar Palestínufólks í forgang. Síðan þá hefur ekkert heyrst frá honum eða ráðuneyti hans um málið, nema þegar því var haldið ranglega fram að landamæri Egyptalands væru lokuð. 

Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra heldur svo uppi stemningunni og lýgur upp í opið geðið á fréttamanni Vísis/Stöðvar 2 að ekkert ríki í Evrópu sé að vinna í fjölskyldusameiningarmálum. 

Annaðhvort er þetta fólk viti sínu fjær eða gefur ekki skít fyrir manneskjur í lífshættu, vill bara ekki undir nokkrum kringumstæðum rétta út hjálparhönd þegar líf liggur við. 

Almenningur og ríkisstjórn Íslands deilir ekki siðferðisgildum. 

Ríkisstjórn Íslands þiggur ekki vald sitt frá guði, heldur almenningi. 

Almenningur gerir þá kröfu að þið ráðherrar sem hér að ofan, eru ávarpaðir, bregðist umsvifalaust við! 

Margrét Kristín Blöndal




Skoðun

Skoðun

Hin­segin réttindi til fram­tíðar

Bjarndís Helga Tómasdóttir,Kristmundur Pétursson,Vera Illugadóttir,Jóhannes Þór Skúlason,Hannes Sasi Pálsson,Hrönn Svansdóttir,Sveinn Kjartansson skrifar

Sjá meira


×