„Það er svona lyfta víða. Hún er á stiganum og er samanbrjótanleg og svo er hægt að láta hana niður og þá fer maður upp á með stólinn og þá fer maður upp,“ segir Sigrún María í samtali við fréttastofu í kvöld.
Hún vakti athygli á biluninni í færslu á Facebook-síðu sinni í gær þar sem hún skorar á Sambíóin að gera eitthvað í málinu. Hún segir þetta alls ekki fyrsta skiptið sem lyftan virkar ekki.
„Ég veit um nokkra á Akureyri sem hafa hreinlega þurft að hætta við að fara í bíó út af lyftunni,“ segir Sigrún María en í færslu hennar kemur fram að starfsmaður kvikmyndahússins og bróðir hennar þurftu að lyfta henni saman upp stigann vegna bilunarinnar.

„Ég var búin að hringja á undan og spyrja um ástandið á lyftunni. Mér hafði verið sagt að hún væri biluð og að þau væru að bíða eftir varahlutum. En ég sagði þá bara að það yrði einhver að vera í bíóinu sem gæti aðstoðað mig upp því ég ætlaði ekki að hætta við að fara. Bróður minn býr í útlöndum og hann var á landinu og ég ætlaði með honum í bíó. Ég ætlaði ekki að láta þetta stoppa mig í því,“ segir Sigrún María.
Hún segir það hafa verið mikil vonbrigði að bróðir hennar hafi svo þurft að aðstoða við að færa hana upp. Það hafi ekki verið tveir starfsmenn frá kvikmyndahúsinu sem gerðu það.
Langvarandi ástand
Spurð hvort þetta hafi verið svona lengi segir Sigrún María að hún hafi heyrt frá annarri konu sem er í hjólastól að sama ástand hafi verið á lyftunni fyrir fimm árum síðan.
„Ég skil ekki hvaða droll þetta er í þeim. Mér finnst þetta ömurlegt. Ég hef mjög gaman af því að horfa á bíómyndir og myndi örugglega fara oftar í bíó ef aðstæður væru öðruvísi.“
Eins og stendur eru Sambíóin eina kvikmyndahúsið á Akureyri. Áður var líka Borgarbíó en því var lokað árið 2022. Sigrún segir að aðstæður hafi verið miklu betri þar fyrir fólk sem noti hjólastól og eigi erfitt með gang. Það sé því orðið mjög áríðandi að Sambíóin kaupi nýja lyftu svo allir komist í bíó.
„Það þýðir ekkert alltaf að laga þessa. Hún virkar í tvær vikur en svo kemur eitthvað upp á.“
Hún hefur engin viðbrögð enn fengið frá bíóinu en vonar að það breytist fljótlega.