Sylvía Rut hefur í tæpt ár starfað sem upplýsingafulltrúi í menningar- og viðskiptaráðuneytinu. Áður starfaði hún um árabil í fjölmiðlum, síðast sem varafréttastjóri í Lífinu á fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Sylvía Rut vann þar einnig að þáttagerð, þar á meðal við ljósmyndaþættina RAX Augnablik sem hlutu Edduverðlaunin árið 2021.
Hún lauk B.A.-gráðu í félagsfræði með fjölmiðlafræði sem aukagrein frá Háskóla Íslands og M.A.-gráðu í fjölmiðlafræði frá Kaupmannahafnarháskóla.
Alls bárust ríflega áttatíu umsóknir um starfið.
„Í heimi upplýsingatækni sem er sífellt í þróun er það dýrmætt að hafa einstaklinga sem hafa bæði faglega þekkingu og hæfni til að miðla henni á skilvirkan hátt. Það er því mikill akkur fyrir okkur að fá Sylvíu Rut til liðs við okkar teymi. Hennar víðtæka reynsla bæði af fjölmiðlun og í almannatengslum mun styrkja okkur og efla þekkingarmiðlun Advania,“ segir Einar Örn Sigurdórsson, markaðsstjóri Advania, í tilkynningu.