Skoðun

Góð ráð til að fljúga ekki á hausinn

Ágúst Mogensen skrifar

Snjókoma, frost og bleyta undanfarna daga hefur framkallað hálku og margir sem hafa leitað á bráðamóttöku eftir byltu. Afleiðingar þess að detta geta verið allt frá öri á sálinni yfir í brot á útlimum og höfuðhögg. Þegar verst lætur og hálkan er mest þurfa tugir að leita sér aðstoðar á dag vegna hálkuslysa. Fylgjumst vel með veðurspám og veljum skóbúnað í samræmi við aðstæður hverju sinni. Þó veðurspá ákveðins dagsi sýni rauðar hitatölur þá getur áhrifa næturfrosts gætt fram undir morgun og hálka verið á götum.

Mannbroddar og mörgæsgangur

Gripgóðir skór og mannbroddar er besta lausnin ef ganga þarf í hálku. Sléttbotna skór eru vondur kostur við þessar aðstæður þó meiri stíll kunni að vera yfir þeim. Til eru margar gerðir af mannbroddum eftir grófleika og innanbæjar dugir okkur einföld gerð með skrúfum eða litlum járnbólum. En óþarfi er að grípa til ísklifurs- eða fjallabrodda til þess að komast yfir bílaplan. Göngulagið skiptir líka máli en oft er talað um svokallaðan mörgæsagang. Höfum hendur aðeins frá síðu til að auka jafnvægi, tökum stutt skref og látum líkamsþunga hvíla á fremra skrefi. Vörumst að ganga löngum skrefum á hælunum og alls ekki með hendur í vösum eða með hluti í báðum höndum.

Hvar fæ ég salt eða sand?

Blautur þjappaður ís er með álíka viðnám og teflon, það loðir fátt við hann. En til þess að leysa klakann upp er hægt að nota salt. Virkni saltsins er þannig að það lækkar frostmark vatnsins og leysir klakann upp ef svo má segja. Sandurinn virkar vel líka en hann eykur viðnám íssins og gefur meira grip. Á mörgum þjónustustöðvum sveitarfélaga er hægt að fá salt og sand í kistum en einnig er hægt að versla í byggingavöruverslunum. Innkeyrslur, inngangar, tröppur og brekkur eru staðir sem hús- og fyrirtækjaeigendur eiga að moka, salta eða sanda reglulega.

Stígum varlega út úr bílnum

Vanalega getum við stigið inn og út úr bíl með aðra löppina fyrst. En ófáir hafa misst fæturna undan sér og flogið á hausinn í hálku með þessari tækni sem gagnast vel þegar ekki er hálka. Ef þú ert búin að leggja á svellhálu bílaplani þá er öruggast fyrir þig að opna hurðina, snúa þér í sætinu þangað til báðar lappir eru komnar út og hafa gott tak með aðra hönd á á bifreiðinni. Þannig ertu stöðugri á hálu yfirborði og dettur síður.

Styðjum okkur við handrið

Hvort sem þú ert að ganga upp hálar tröppur utan við heimahús eða blautar tröppur inni þá skaltu styðja þig við handrið. Fall í tröppum eru algeng og dæmigert atvik þegar einhver er að flýta sér, heldur sér ekki í og fellur fram eða aftur fyrir sig. Ef þú fellur þá þarftu að geta borið hendur fyrir þig. Kastaðu innkaupapokanum eða símanum frá þér og reyndu að draga úr fallinu og verja höfuðið eins og kostur er.

Hálkuslys geta verið alvarleg en með þessum einföldu ráðum má koma í veg fyrir þau: salta, sanda, styðja sig við, smella á sig mannbroddum og ganga eins og mörgæs.

Höfundur er sérfræðingur í forvörnum hjá Verði tryggingum hf.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×