Hákon Rafn skrifar undir samning við Brentford til ársins 2028 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. janúar 2024 16:33 Hákon Rafn Valdimarsson er nýjasti Íslendingurinn í ensku úrvalsdeildinni. brentfordfc.com Hákon Rafn Valdimarsson var kynntur formlega í dag sem nýr leikmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Brentford. Brentford kaupir hann frá sænska liðinu Elfsborg.
Hákon fór frá Gróttu til Elfsborg í júlí 2021 og hefur slegið í gegn hjá sænska félaginu. Hann var valinn besti markvörður sænsku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili. Hann hélt oftar hreinu en nokkur annar (13 sinnum) og varði 78 prósent skota sem á hann komu sem var einnig það besta í deildinni. Elfsburg var nálægt því að vinna sænska titilinn en missti af honum undir lokin. Hákon hefur skrifað undir samning til ársins 2028 með möguleika á því að framlengja samninginn um tvö ár. Hákon lék síðan sinn fyrsta A-landsleik á móti Portúgal í nóvember og lítur út fyrir að vera framtíðarmarkvörður landsliðsins. „Ég er mjög, mjög ánægður með að við náðum að fá Hákon því það var samkeppni frá öðrum félögum meðal annars frá liðum í ensku úrvalsdeildinni. Við erum að stækka sem félag og við höfum sýnt það að hjá okkur verða leikmenn betri,“ sagði Thomas Frank, knattspyrnustjóri Brentford, í frétt á síðu félagsins. „Hákon er mjög spennandi markvörður. Hann er öflugur í teignum og í því að grípa inn í fyrirgjafir frá föstum leikatriðum sem og í opnum leik. Hann er líka góðu í að dreifa boltanum. Hann passar vel inn í það hvernig við viljum spila,“ sagði Frank. His new home in West London Hákon Valdimarsson, a Bee till 2028 pic.twitter.com/dDQSlt7J1T— Brentford FC (@BrentfordFC) January 26, 2024
Enski boltinn Mest lesið „Fór að hugsa hvað ég væri eiginlega að gera“ Handbolti Hefur Amorim bætt Man United? Enski boltinn „Ég er stríðsmaður og hef lent í þessu áður“ Körfubolti Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Liverpool-banarnir í Plymouth mæta til Manchester Sport „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Íslenski boltinn Glæsimark Jóhanns tryggði sigurinn gegn Ronaldo og félögum Fótbolti „Óafsakanlegt hvernig við mættum til leiks“ Körfubolti „Tilefnið stórt og sterkt að landa sigri“ Körfubolti Asensio skaut Villa áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Hefur Amorim bætt Man United? Asensio skaut Villa áfram Lýsandi Sky Sports baðst afsökunar á ummælum um United UEFA segir Chelsea vera með dýrasta lið sögunnar Garnacho þarf að splæsa máltíð á allt liðið Segir glottandi Carragher að fara til fjandans Kvartar undan Man. City við Evrópusambandið Hamrarnir héldu Refunum í fallsæti Echeverri má loks spila fyrir Man City „Þú ert að tengja þetta við Rashford“ Liverpool rak stjóra kvennaliðsins Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Komnir með þrettán stiga forskot Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Haaland sneri aftur og var hetjan Darwin Núnez langt frá efstu mönnum í klúðruðum dauðafærum „Fyrr skal ég dauður liggja“ Slot í bann og stýrir Liverpool ekki í kvöld Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Chelsea skrapaði botninn með Southampton Segir að Maresca verði rekinn ef næstu tveir leikir vinnast ekki Þolinmæðin á Højlund nánast á þrotum Carragher kallaði Ferdinand trúð United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar Sjá meira