Gengið var frá ráðningu Lúðvíks á fundi bæjarstjórnar í kvöld. Í sameiginlegri bókun bæjarfulltrúa flokkanna þriggja segir að ekki hafi verið gætt að óhlutdrægni við ráðninguna og að þau vilji ekki fallast á þá tillögu að ráða Lúðvík Örn í starfið. Vísa þau í ákvæði stjórnsýslulaga þar sem fjallað er um vanhæfisástæður og draga óhlutdrægni formanns bæjarráðs, Bjargar Fenger, í efa.

„Í dag stöndum við því frammi fyrir þeirri áleitnu spurningu hvort formaður bæjarráðs og formaður skipulagsnefndar, geti í reynd verið hlutlaus gagnvart kollega sínum og samstarfsfélaga svo það sé hafið yfir allan vafa. Um er að ræða ráðningu í eitt æðsta embætti sveitarfélagsins. Það er afar mikilvægt fyrir hvert sveitarfélag að starfsmenn stjórnsýslunnar séu hafnir yfir allan vafa og að um stjórnsýsluna ríki traust allra íbúa. Þar af leiðandi óskum við eftir skriflegum rökstuðningi vegna ráðningar í stöðu sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs,“ segir í bókuninni.
Þar gera þær einnig athugasemdir við það að Lúðvík Örn hafi um langt skeið gegnt trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn og geri það enn með setu í nefndum. Sjálfstæðisflokkurinn er með hreinan meirihluta í bæjarstjórn bæjarins.
Fram kemur í bókuninni að hann hafi verið formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í sveitarfélaginu og hafi haldið utan um prófkjör og kosningabaráttu flokksins. Þá sitji hann einnig í skipulagsnefnd bæjarins fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins en Björg er formaður nefndarinnar.
Vinur bæjarstjóra einn sá hæfasti
Sara Dögg Svanhildardóttir, bæjarfulltrúi Viðreisnar, segir í samtali við Vísi að um leið og listi yfir umsækjendur hafi legið fyrir hafi vaknað upp spurningar um hvað ætti að gera. Samkvæmt hefð hafi ráðningarskrifstofa séð um ferlið en bæjarstjóri átt að sitja síðasta viðtal og velja svo á milli umsækjenda. Almar hafi vikið vegna vanhæfis og Björg tekið við.
„En þá gerðist það sem við óttuðumst. Að vinur bæjarstjóra og samstarfsmaður þeirra, pólitískt, verður einn af þeim sem teljast hæfastir. Svo er Björgu falið að velja á milli tveggja hæfustu,“ segir Sara Dögg og að gagnrýni minnihlutans lúti helst að því sem hafi þá gerst.
„Sumir myndu bara kalla þetta pjúra spillingu. Maðurinn er flokksbundinn, situr fyrir flokkinn í nefnd í sveitarstjórn og formaður bæjarráðs, sem sér um tilnefningu í starfið, er formaður í sömu nefnd. Þau eru samstarfsmenn í pólitík í skipulagsnefndinni,“ segir Sara Dögg og að vegna þess hafi fulltrúum í minnihluta þau geta vísað til stjórnsýslulaga og til vanhæfis vegna óhlutdrægni hennar.
„Því hún er klárlega tengd manninum,“ segir Sara og að hún, og aðrir í minnihlutanum, telji að á þessum tímapunkti hefði Björg átt að lýsa sig vanhæfa.

„Við hefðum talið að til að taka af allan vafa um þessa ráðningu hefði hún átt að segja frá því að einn sá hæfasti væri tengdur þeim. Það væri faglegt mat ráðningarskrifstofu. En hefði svo átt að kalla til fundar og fá fulltrúa frá öllum flokkum í bæjarráði til að taka þessa ákvörðun sameiginlega. Bara að gera eitthvað til að bregðast við þessari ömurlegu stöðu sem hún var komin í.“
Sara Dögg segir að miklu leyti snúist gagnrýni þeirra líka um stöðuna sjálfa sem Lúðvík er skipaður í. Um sé að ræða afar mikilvæga stöðu innan stjórnsýslunnar sem sé mikilvægt að traust ríki um.
„Það er algerlega ótækt að það sé aðili með pólitíska slagsíðu í þessari stöðu. Manni er algerlega misboðið. Stjórnsýslan á að vera hafin yfir allan vafa um pólitík eða tengingar. Sviðsstjórnar á stjórnsýslusviði eiga að vera hlutlausir og það eiga allir að geta treyst því að þeir séu það. Með þessari ráðningu getur enginn treyst því,“ segir Sara Dögg og að ráðningin sé afar slæm fyrir bæjarfélagið og íbúa.
Hún segir að meirihlutinn hafi kosið með ráðningunni á fundi bæjarstjórnar í kvöld en minnihlutinn gegn henni. Sara Dögg segist þó ætla að biðja um það að málið verði rætt á fundi bæjarráðs eftir helgi.