Þeir voru ræstir út um níuleytið til að sækja sandbirgðir sem átti að koma yfir nýju lögnina til að vernda hana frá hrauninu sem nálgaðist hana óðfluga.

„ Við vorum þarna bara við hraunjaðarinn, tveir vörubílar, að sturta af gröfu til þess að moka yfir nýju lögnina. Vegna þess að hraunið var bara að renna yfir hana jafnóðum,“ segir hann í samtali við fréttastofu.
Eins og sést á myndunum var ekki um hefðbundna viðhaldsvinnu að ræða þar sem fljótandi hrauntungur mjökuðust nær með hverri sekúndunni.
„Þegar við vorum að bakka vörubílunum og maður horfði út um bílgluggann var svona metri í hraunið. Hraunið var að leka að bílunum okkar. Sérsveitin var þarna í bíl til þess að fylgjast með okkur,“ segir Gunnar.

„Það voru gröfur og jarðýta að ýta upp efni af planinu til þess að stoppa hraunið á meðan við vorum að koma þessum rúmmetrum að lögninni. Ef að það hefði ekki verið gert þá væri hún ónýt,“ bætir hann við.
Það þurfti að ryðja mikinn snjó sem safnast hafði upp á veginum til að koma þeim til og frá vinnuvettvanginum.
„Klukkan fjögur förum við, þá er hraunið komið og við búnir með sandinn. Þá er hraunið komið að okkur, við þurftum að keyra niður eftir með lögninni, niður í námurnar hjá ÍAV til þess að komast til Njarðvíkur. Það voru hreinlega tvær jarðýtur að moka veginn til þess að við gætum farið í þetta starf,“ segir Gunnar.
