Herjólfur hafði verið á leið úr Landeyjahöfn til Vestmannaeyja og var ferðin notuð til að æfa notkun léttabátsins þegar kviknaði í vélarrúminu.
Björgunarskipið Þór var kallað út á hæsta forgangi og hélt úr höfn klukkan 18:35 til móts við Herjólf og léttabátinn. Þegar Þór kom á staðinn nokkrum mínútum síðar hafði tekist að slökkva eldinn og bjarga manninum og því engin hætta lengur á ferðum.
Áhöfn léttabátsins var tekin um borð í Þór og áhöfn björgunarskipsins kom toglínu í léttabátinn. Þór hélt svo með léttabátinn í togi til hafnar í Vestmannaeyjum. Mennirnir þrír sem voru um borð í léttabátnum voru að eigin ósk fluttir með sjúkrabíl til skoðunar á sjúkrahús Vestmannaeyja.
Gott veður og sjólag var á staðnum og gengu aðgerðir vel. Þór var lagstur að bryggju um 45 mínútum eftir að lagt var úr höfn.