Finnur Þór skipaður héraðsdómari Árni Sæberg skrifar 16. febrúar 2024 09:09 Finnur Þór var saksóknari áður en hann settist á dómarabekkinn. Vísir/Vilhelm Dómsmálaráðherra hefur skipað Finn Þór Vilhjálmsson í embætti héraðsdómara með fyrsta starfsvettvang hjá Héraðsdómi Reykjavíkur frá 14. febrúar 2024.
Þetta segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Átta sóttu um stöðuna þegar hún var auglýst í september síðastliðnum. Dómnefnd um hæfni umsækjenda mat Finn Þór jafnhæfastan ásamt þeim Sindra M. Stephensen og Stefaníu G. Sæmundsdóttur. Í tilkynningu segir að Finnur Þór hafi lokið embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2007 og öðlast sama ár réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi. Frá 28. september 2023 hafi Finnur Þór verið settur dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur en þar áður hafi hann meðal annars starfað sem saksóknarfulltrúi og aðstoðarsaksóknari hjá embætti sérstaks saksóknara, síðar héraðssaksóknara, þar af sem skipaður saksóknari frá árinu 2016. Þá hafi Finnur Þór starfað sem lögfræðingur hjá embætti umboðsmanns Alþingis og sem starfsmaður rannsóknarnefndar Alþingis um aðdraganda og fall íslensku bankanna árið 2008. Þá hafi hann verið starfsmaður og meðritstjóri skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um þátttöku Hauck & Aufhäuser Privatbank KGaA árið 2003 í kaupum á eignarhlut ríkisins í Búnaðarbanka Íslands. Finnur Þór hafi einnig sinnt kennslu í lögfræði á háskólastigi.
Dómstólar Reykjavík Vistaskipti Mest lesið „Þetta eru atburðir sem við höfum aldrei séð áður“ Innlent Svava Lydia komin í leitirnar Innlent Segir afnám samsköttunar svik við kjósendur Innlent Afsökunarbeiðni til Ólafar ekki í kortunum Innlent Kvikugangur frá Krýsuvík gæti náð inn í Heiðmörk Innlent Lýsa eftir Svövu Lydiu Innlent Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Erlent ÍR kveikti á skiltinu án leyfis Innlent Tímamót í opinberri heimsókn Höllu til Noregs Innlent Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Erlent Fleiri fréttir „Ekki leika þennan leik“ Félag atvinnurekenda svarar Ríkisendurskoðun Svava Lydia komin í leitirnar „Þetta eru atburðir sem við höfum aldrei séð áður“ Milljarðakrafa varði ekki sérstaklega mikilvæga hagsmuni Afsökunarbeiðni til Ólafar ekki í kortunum Logi í Úkraínu og markaðirnir rétta úr kútnum Myndavélarnar mikilvægar og upptökurnar góð sönnunargögn „Alvarlegt að saka ríkisendurskoðanda um að villa um fyrir Alþingi“ Norðurlöndin vinni með Bandaríkjunum svo þau fari ekki í „ranga átt“ Tímamót í opinberri heimsókn Höllu til Noregs ÍR kveikti á skiltinu án leyfis Vilja betri afkomutryggingu fyrir bændur sem verða fyrir uppskerutjóni Guðmundur Árni sækist eftir endurkjöri Segir afnám samsköttunar svik við kjósendur Tíðir Esjufarar hryggir vegna örlaga Steins Kvikugangur frá Krýsuvík gæti náð inn í Heiðmörk Tvímennir fangaklefar og frekara húsnæði til skoðunar til að leysa plássleysi Blés til skyndifundar vegna innflutnings gerviópíóða Stjórnarandstaðan gekk á dyr: Tekist á um þingskjalið í beinni Blóðbað, þingmenn ganga á dyr og ógnin við Reykjavík Forsetahjónin á leið til Noregs Lýsa eftir Svövu Lydiu Kristrún ein í framboði til formanns Bæjarstjóri og bæjarfulltrúi saka hvor aðra um brot á siðareglum „Það eru ekki skattahækkanir“ Hvalfjarðargöng lokuð vegna bilaðs bíls Áfrýja og stofna félag um réttinn til að mótmæla Munu ekki hlaupa síðustu metrana í Geirsgötu fyrr en 2026 Allir og amma þeirra keppast um að skilgreina „woke“ Sjá meira