Kl. 18:00 hefjast herlegheitin með leik FH og Young Prodigies. Liðin eru jöfn á stigum í 6-7 sæti og ljóst að sigurvegarinn tryggir sig í efstu 6 sætin, sem gefur þeim forskot í mótum sem koma í kjölfar deildarkeppninnar.
Breiðablik og Saga eru næst í eldlínunni, en þau keppast upp á fjórða sætið. Kl. 19:00 mæta Blikar ÍA og Saga mætir ÍBV kl. 20:00.
Kl. 21:00 hefst stórleikur kvöldsins og má segjast stórleikur tímabilsins. Þór mæta þar NOCCO Dusty í sannkölluðum úrslitaleik þar sem bæði lið hafa möguleika á að hneppa deildarmeistaratitilinn.
Fylgjast má með Ljósleiðaradeildinni í beinni útsendingu á Stöð 2 Esports, Twitch-rás Rafíþróttasamtakanna eða í spilaranum hér fyrir neðan.