„Við þurftum svo að bíða dálítið eftir leyfi frá landlæknisembættinu en það kom svo í mars árið 2023. Þá kom fyrsti skjólstæðingurinn inn í þetta,“ segir Margrét Björk.
HSU gerði samstarfssamning við Öryggismiðstöðina árið 2022 um að prófa þessa nýju tækni. Í kjölfarið fengu nokkrir starfsmenn þjálfun. Hún segir að skjólstæðingarnir hafi allir verið valdir úr heimaþjónustu og hjúkrun. Til að byrja með hafi þeir allir verið með hjartabilun og úr sjúklingahópi sem starfsmennirnir hafi vel þekkt til.
„Þau mæla sig sjálf heima og mælingin flyst með Bluetooth í appið. Þetta er svo allt skráð í appið sem þau þurfa að skrá sig inn í með rafrænum skilríkjum,“ segir Margrét Björk og að það geri líka heilbrigðisstarfsfólkið til að skoða niðurstöðurnar.

„Þá sjáum við allar mælingarnar um leið og þau mæla sig,“ segir Margrét Björk og að þau sem hafi notað appið og mælana hafi á sama tíma orðið miklu virkari í því að fylgjast með eigin heilsu.
„Þau eru miklu meðvitaðri um það hvað er að valda hækkunum,“ segir hún og að þjónustuna auki öryggi sjúklinga og viðbragðstíma starfsfólks ami eitthvað að.
Tryggir öryggi sjúklinga
Margrét Björk segir að til að byrja með mæli fólk sig alla daga. Þannig fáist upplýsingar sem hægt er að miða við og svo út frá því er ákveðið hversu oft þarf að mæla í viku.
„Þetta hefur fækkað þeim vitjunum sem við þurfum að fara. Við þurfum ekki að fara heim til fólks lengur einungis til að fá eðlilega mælingu,“ segir Margrét Björk og að í stað þess sé manneskja sem fylgist með mælingunum í rauntíma á spítalanum.
„Við erum að grípa fólk fyrr, áður en það þarf að fara á bráðamóttöku eða leggjast inn á sjúkrahús. Við erum að reyna að grípa inn í áður en það verður svo slæmt,“ segir Margrét Björk.
Hún segir að þetta tryggi meira öryggi fyrir sjúklinga og betri þjónustu. „Ef einhver mælir sig allt í einu ekki, sem gerir það annars daglega, þá hringjum við og athugum hvort það sé í lagi með viðkomandi. Við getum líka sent skilaboð í gegnum kerfið.“

Margrét Björk segir að þau hafi óttast til að byrja með að innleiðingin yrði erfið því fólk þarf að nota snjalltæki og skrá sig inn með rafrænum skilríkjum. Það hafi svo alls ekki verið vandamál.
„Það eru flestir komnir með tæki í dag. Fólk er með sín eigin tæki og kann betur á þau,“ segir hún og að í Noregi, þar sem þessi tækni sé enn nýtt, hafi fólki verið gefinn iPad til að byrja með. Hún hafi ekki séð þörf á því hér og hafi frekar séð mikla kosti við það að vera með appið í símanum þar sem fólk samþykkir aðgang í rafræn skilríki á sama stað.
Draumur í dreifbýli
Margrét Björk að þeirra draumur sé að geta nýtt þessa tækni fyrir fólk sem býr langt í burtu. Þau hafi byrjað á Selfossi en svo hafi bæst við fólk í Vestmannaeyjum sem sé með mæla. Alls eru fjórtán skráðir í þjónustuna á Selfossi og tíu í Vestmannaeyjum. Hún segir þjónustuna fyrir fólk á öllum aldri.
„Það þarf svo enginn að vera í þessu endalaust. Það er hægt að vera í þessu tímabundið á meðan fólk er til dæmis að skipta um lyf,“ segir Margrét Björk.
Spurð af hverju þær hafi farið í þetta segir Margrét Björk að hugmyndin hafi komið út frá heimaspítalanum sem byrjaði á HSU árið 2022. Heimaspítali er ný þjónusta fyrir aldraða þar sem læknir og hjúkrunarfræðingur heimsækja skjólstæðinga sína með stuðningsmeðferð í heimahúsi. Tilgangurinn er þar líka að fækka innlögnum á bráðamóttöku og sjúkrahús.
„Það er hægt að fá miklu fleiri mælingar í gegnum þetta. Þannig við sjáum alveg fyrir okkur í framtíðinni að geta fylgst með öðrum hópum eins og fólki með sykursýki eða fólki í ofþyngd. Fólk þyrfti þá ekki að koma eins oft á heilsugæslustöðina,“ segir Margrét Björk.
„Það er betra að byrja smátt og útvíkka það svo.“