Talsvert ósætti ríkir um tillöguna og greiddi til að mynda einn bæjarfulltrúi Fjarðarlistans, Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir, atkvæði gegn henni. Hún segir tillöguna ekki styrkja skólastarf í bæjarfélaginu.
„Ég verð að fá að lýsa vonbrigðum mínum með skort á samstarfi við skóla- og fagfólk í menntamálum í mótun á þessari tillögu. Þegar verið er að fara í eins gríðarmiklar breytingar og þessa þá er algjörlega nauðsynlegt að hafa samstarf við alla aðila skólasamfélagsins, alla skólastjórnendur, starfsfólk og skóla- og foreldraráð skólanna,“ sagði Hjördís á fundi bæjarstjórnar.
Skólastjórnendur í Fjarðabyggð funduðu á Reyðarfirði í dag og lýsa ósætti sínu yfir breytingunum og þeim rangfærslum sem þeir halda fram að fram hafi komið í kjölfarið.
Þeir segja að ekkert samráð hafi verið haft við skólastjórnendur eða aðra aðila skólasamfélagsins og að engar upplýsingar hafi komið fram um tilætlaðar breytingarnar en við birtingu fundargerðar bæjarstjórnar á þriðjudaginn.
Óttast skerðingu skólaþjónustu
Einnig hafi fulltrúa skólastjórnenda grunnskóla í samráðshópi meinað að eiga samráð við eða upplýsa aðra skólastjórnendur í sveitarfélaginu um starf hópsins. Tillögur fulltrúa skólastjórnenda hafi verið virtar að vettugi og ekki tekið mark á þeim.
„Skólastjórnendur óttast að verði fyrirhugaðar breytingar að veruleika þá muni skólaþjónusta við grunnskólabörn skerðast og vegið verði að lögvörðum réttindum þeirra til náms. Lög um farsæld barna leggja ýmsar skyldur á aðila skólasamfélagsins. Skólastjórnendur óttast að ekki náist að uppfylla þær að fullu verði ofangreindar breytingar að veruleika,“ stendur í tilkynningu frá skólastjórnendum í Fjarðabyggð undirritaðri af Ástu Ásgeirsdóttur, skólastjóra Grunnskóla Reyðarfjarðar.
„Þá hefur Kennarasamband Íslands bent á að hugsanlega brjóti tillögur bæjarstjórnar í bága við lög um grunnskóla sem og kjarasamninga Kennarasambands Íslands við Samband íslenskra sveitarfélaga.“