Skoðun

Ekkert að frétta úr mið­bæ Kópa­vogs

Hákon Gunnarsson skrifar

Í að verða sex ár, hafa íbúar í miðbæ Kópavogs og margir aðrir íbúar í bænum beðið eftir fréttum af væntanlegum framkvæmdum á Fannborgarreitnum í hjarta bæjarins.

Kaupsamningur um sölu á Fannborg 2, 4 og 6 (gamla Félagsheimilið) var undirritaður 10 maí 2018. Þrátt fyrir samkomulag við framkvæmdaraðila um „gott samstarf og upplýsingaflæði á framkvæmdatíma til íbúa“ þá hefur þessi upplýsingagjöf engin verið. Ég ætti að þekkja það, bý sjálfur á svæðinu og það hefur ekki heyrst hósti né stuna frá framkvæmdaaðilum varðandi fyrirhugaðar framkvæmdir nema í algeru skötulíki.

Á fundi skipulagsráðs Kópavogsbæjar þann 4. mars 2024 voru birt skrifleg svör við fyrirspurn frá undirrituðum í fimm liðum um hver staða mála væri varðandi aðal- og deiliskipulag á Fannborgarreit annarsvegar og Traðarreit vestur hinsvegar í miðbæ Kópavogs. Spurt var sömuleiðis um hvenær niðurrif fasteignanna við Fannborg 2,4 og 6 myndu hefjast og hvort komið væri byggingarleyfi fyrir 550 íbúðum sem bæjarstjórn hefur samþykkt í húsnæðisáætlun. Ennfremur hvenær framkvæmdir á svæðinu myndu hefjast og hvernig fyrirkomulag um upplysingagjöf og samtal við íbúa á svæðinu myndu verða.

Svör Umhverfissviðs staðfestu grun minn og margra annara að núverandi meirihluti bæjarstjórnar veit ekki sitt rjúkandi ráð í þessu máli. Ekkert er vitað um hvenær framkvæmdir hefjast á svæðinu, engin byggingarleyfi hafa verið gefin út og svo framvegis. Framsetningin í svari Umhverfissviðsins er sérstök: „Samkvæmt uppbyggingarsamkomulagi er lögð áhersla á gott samstarf og upplýsingaflæði á framkvæmdatíma til íbúa. Í samkomulaginu er gert ráð fyrir að framkvæmdaaðili tilnefni tengilið íbúa á framkvæmdatíma. Kópavogsbær hefur ekki upplýsingar um hvort að framkvæmdaraðilar hafi tilnefnt tengilið eða hvort að sá aðili verði sameiginlegur fyrir bæði verkefnin (Fannborgarreit og Traðarreit vestur)“.

Ef menn hefðu notað tímann vel frá 10 maí 2018 væri komin áætlun um nýjan miðbæ í Kópavogi. Hægt hefði verið að fara í hugmyndasamkeppni um hvers konar samfélag við viljum hafa í miðbæ Kópavogs. Hvernig íbúðauppbygging gæti tengst atvinnulífi og menningarstarfseminni sem þarna er fyrir. Gætum við séð fyrir okkur nýjan miðbæ sem snýr í suður mót sólu í stað drungalegrar Hamraborgar sem nú er? Hvernig tengjum við tilkomu Borgarlínu við þessa þriðju stærstu strætisvagnastöðvar landsins þar sem 1,5 milljónir farþega fara um á hverju ári.

Menn geta síðan velt fyrir sér tekjutapi bæjarins vegna þessara tafa í formi glataðra útsvarstekna og fasteignagjalda. Það eru örugglega hundruð milljóna króna ef ekki meira. Merkilegt hvað margir telja að Sjálfstæðisflokknum sé best treystandi fyrir opinberum fjármálum. Það er löngu kominn tími til að binda endi á hugmyndafræði Sjálfstæðisflokksins við framkvæmd á skipulagi í Kópavogsbæ. Í stað heildarhugmyndar um betra samfélag sem tekur mið af framtíðarsýn í nútíma bæjarfélagi þá kýs núverandi meirihluti að framselja skipulagsvaldið til útvalinna verktaka. Kópavogsbúar eiga miklu betra skilið.

Höfundur situr í skipulagsráði Kópavogs fyrir Samfylkinguna.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×