Þetta veit til dæmis ein skemmtilegasta kona landsins, sjónvarpskonan Berglind Festival. Hún naut lífsins á veitingahúsinu OTO á Hverfisgötu í vikunni sem leið og fetaði þar í fótspor sjónvarpskokksins Gordon Ramsay sem gerði slíkt hið sama hér um árið.
Þá voru fleiri starfsmenn Ríkisútvarpsins í eldlínunni á skemmtistöðum Reykjavíkur. RÚV þrennan Hilmar Björnsson, yfirmaður íþróttadeildar, Baldvin Þór Bergsson ritstjóri Kastljóss og Skarphéðinn Guðmundsson dagskrárstjóri voru staddir saman á American Bar á fimmtudagskvöld. Þar horfðu þeir á Ísland vinna stórsigur á Ísrael í útsendingu Stöðvar 2 Sport.
Borgarfulltrúinn og oddvitinn Hildur Björnsdóttir stytti sér stund á milli stríða um helgina og kíkti með krakkana á uppsetningu Þjóðleikhússins á Frosti. Á meðan naut Dagur B. Eggertsson fyrrverandi borgarstjóri lífsins á vínstaðnum Apero. Þar var einmitt líka hæstaréttarlögmaðurinn Kristín Edwald sem fékk sér gott vín í góðra vina hópi.
Sama kvöld naut Una Sighvatsdóttir aðstoðarmaður forseta Íslands lífsins í Þingholtunum á Bodega. Idol stjarnan Kjalar Martinsson Kollmar hóf föstudagskvöldið sitt í Kringlunni. Þar voru einmitt fleiri Idol stjörnur en þau Jóna Margrét og Ólafur Jóhann voru á Kúmen þar sem þau fengu sér að borða saman. Vísi er ekki kunnugt um hvar þau enduðu kvöldið en Kjalar lauk föstudagskvöldinu hinsvegar á Petersen svítunni í miðbæ Reykjavíkur.

Á laugardagskvöldinu var Sveppi krull eins og hann er kallaður á Sushi Social að fá sér gott súsí á laugardagskvöldinu. Eiður Smári Guðjohnsen góðvinur Sveppa til margra ára var þar með honum og þeir slógu svo sannarlega á létta strengi í gleði og fjöri. Með þeim æskufélögum var sömuleiðis Jökull Júlíusson, söngvarinn í Kaleo.
Það sáust hinsvegar ekki allir bara á djamminu um helgina. Þannig létu þau Vítalía og Arnar Grant vel að hvort öðru á Te og kaffi í Smáralind. Henry Alexander siðfræðingur fékk sér göngutúr í Þingholtunum og svo sundsprett úti á nesi. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra veit hvað skiptir máli í lífinu og fékk sér ís í ísbúð Huppu í Garðabænum.

Þá skiptir hversdagurinn líka máli. Birgitta Líf og Enok Jónsson kíktu í Lyfju í Lágmúla með nýja erfingjann. Kolfinna Nikulásdóttir og Sturla Atlas versluðu sér á meðan í matinn í Bónus í Skipholti en útvarpskonan Kristín Sif Björgvinsdóttir skellti sér í Hagkaup í Skeifunni.
Sumir hugsa sér líka gott til glóðarinnar nú þegar það styttist í páska og langþráð frí. Þannig voru grínistinn Ari Eldjárn og Tinna Brá Baldvinsdóttir framkvæmdastjóri og eigandi Hrím á Keflavíkurflugvelli í gær, á leið til útlanda. Þar var líka þingmaðurinn Hanna Katrín Friðriksson með eiginkonu sinni Ragnhildi Sverrisdóttur, enda þingið í páskafríi.