„Það er í raun eðlilegt miðað við að það liggur ekki fyrir hvort við erum með starfhæfa ríkisstjórn í landinu. Þetta var mjög óraunhæf dagskrá,“ segir Þórhildur Sunna og að mörg mál hafi verið á dagskrá á forræði þeirra sem sitja saman á fundi og reyna að mynda ríkisstjórn.

Það hafi ekki verið við hæfi að ræða „gommu“ af málum á þingi á meðan ekki er búið að mynda ríkisstjórn.
Birgir Ármannsson, forseti þingsins, bauð fólk aftur velkomið til starfa við upphaf þingfundar í dag. Tilkynnti svo að Katrín Jakobsdóttir væri hætt á þingi, að Inga Sæland hefði í annað sinn lagt fram vantrauststillögu á hendur Svandísar. Svo frestaði hann öllum málum og sleit fundi.
Þórhildur Sunna fagnar því að forseti hafi hlustað á óskir stjórnarandstöðu um að halda ekki dagskrá við þessar aðstæður en að einnig megi lesa í þetta að mögulega séu formenn stjórnarflokkanna nær því að komast að einhverri niðurstöðu.
Logi Einarsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, tekur í sama streng og Þórhildur Sunna. Hann telur að það dragi til tíðinda von bráðar.
„Við vorum búin að gera athugasemdir við það að starfsstjórnin væri að leggja fram þrettán stjórnarmál. Á hinn bóginn held ég að það sé að draga til tíðinda. Það eru ýmsir sem ganga hér um húsið tindilfættir og aðrir þungstígara. Þannig ég held að þau séu búin að sjá til lands í þessu,“ segir Logi.
Hann segir að ríkisstjórnin gæti þannig séð haldið þar til kosið verður á næsta ári en hann efast samt um það.

„Þau eru ítrekað búin að fresta fjármálaáætlun, gerðu það síðast í morgun. Hún er komin fram yfir það sem lög kveða á um. Þau eru með samgöngusáttmála, þau eru með kjarasamninga ófjármagnaða. Þau verða að fara að sýna einhvern kraft og vinna í þágu þjóðarinnar ef þau ætla að halda áfram,“ segir Logi.
Greinilegt að niðurstaða liggi ekki fyrir
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson telur ólíklegt að formenn ríkisstjórnarflokkanna séu komnir að niðurstöðu varðandi það hver hlutverk hverra verða í nýrri ríkisstjórn.
„Það segir mér að þau séu ekki búin að ná niðurstöðu í þessum stjórnarmyndunarviðræðum,“ segir Sigmundur Davíð um það hvers vegna þingfundi var frestað.
„En einnig hafði ég nú bent á að það væri afar óviðeigandi fyrir starfsstjórn, bráðabirgðastjórn, að leggja fram 13 ný þingmál, pólítíks mál,“ segir Sigmundur Davíð og að það sé afar óvanalegt fyrir starfsstjórn.

Þau hefði lent í heilmiklum vandræðum á þingi hefðu þau haldið þessari dagskrá til streitu og að það fari að verða álitamál hvernig eigi að halda málum í gangi á þinginu ef það dregst of lengi að mynda nýja ríkisstjórn.
„Þetta verður að fara að klárast, eins og menn hafa margir bent á. Senn, senn var sagt klárast þetta, en senn er greinilega teygjanlegt hugtak en það eru takmörk fyrir því líka hversu teygjanlegt það má vera.