Frá þessu segir á vef Vegagerðarinnar. Þar segir að á skiltunum séu allajafna birtar upplýsingar um veður, það er vindátt, vindhraða og hitastig. Einnig komi fram frá hvaða veðurstöð upplýsingarnar séu fengnar.
„Ef vindhraði fer yfir 15m/sek birtast einnig upplýsingar um það.
Hægt er að koma öðrum skilaboðum til vegfarenda ef þörf reynist á því, svo sem aðvaranir eða upplýsingar um lokanir. Skiltin eru tengd miðlægu stjórnkerfi í vaktstöð Vegagerðarinnar sem er með þau í vöktun og stjórnar þeim.
Til stendur að setja upp fleiri skilti af þessu tagi á næstunni, eða á Hringvegi (1) við Kotströnd milli Hveragerðis og Selfoss, í Refasveit við Blönduós og við Reykjanesbraut,“ segir á vef Vegagerðarinnar.