Vinsældir Clark eru slíkar að það seldist upp á alla leiki Iowa háskólans í vetur, miðaverðið á þá rauk upp og næstum því nítján milljónir fylgdust með úrslitaleiknum í kvennaháskólakörfuboltanum sem er meira en á öllum NBA leikjum frá 2019.
Clark tilkynnti á dögunum að þetta yrði hennar síðasta tímabil í háskólaboltanum því hún ætlaði að bjóða sig fram í nýliðavalið. Hún varð þá aldrei háskólameistari, tapaði í úrslitaleiknum undanfarin tvö ár, en sló öll stigametin og metin yfir þriggja stiga körfur hvort sem þú horfir á karla eða konur.
on the national stage 36 times this season
— Indiana Fever (@IndianaFever) April 10, 2024
learn more: https://t.co/Ody0WZxz9Q pic.twitter.com/UvaNdbuwcj
Clark er frábær leikmaður og sannkölluð tilþrifa drottning. Hún skorar með þristum af löngu færi, getur búið til sitt eigið skot, farið framhjá varnarmönnum og hún spilar uppi liðsfélagana með frábærum sendingum.
Indiana Fever datt í lukkupottinn því félagið á fyrsta valrétt í nýliðavalinu í ár og mun örugglega nota hann í að velja Clark.
Þetta gerir það verkum að mótherjar Indiana Fever eru farnir að færa leiki sína í stærri íþróttahús vitandi að áhugi á miðum á leikinn á móti Fever muni rjúka upp þegar Clark kemur inn í deildina.
Sjónvarpsmálin segja líka sína sögu. Þar munu útsendingar frá leikjum Fever margfaldast.
Indiana Fever átti líka fyrsta valréttinn í fyrra og valdi þá miðherjann Aliyah Boston. Boston hafði líka átt flottan háskólaferil en vinsældir hennar voru ekki líkingu við vinsældir Clark.
Fever liðið var aðeins einu sinni í beinni útsendingu hjá stóru stöðvunum á síðasta tímabili en slíkum útsendingum fjölgar nú upp í 36.
The WNBA just announced that 36 of the Indiana Fever's 40 regular season games will be on national television.
— Joe Pompliano (@JoePompliano) April 10, 2024
That includes 10 games on ABC, ESPN, ESPN2, and CBS, as well as additional games on Amazon Prime Video and NBA TV.
The Caitlin Clark effect is real.
Jú 36 af 40 leikjum Fever á fyrsta tímabili Clark verða sýndir í beinni á stóru stöðvunum sem nást út um öll Bandaríkin.
Það má líka búast við því að aðdáendur Clark verði mættir fyrir framan sjónvarpstækin til að horfa á þessa leiki og WNBA-deildin mun eflaust fá meira áhorf en hún hefur nokkurn tímann fengið.
Caitlin Clark áhrifin eru engu öðru lík. Menn hafa reyndar talað um að koma hennar inn í WNBA-deildin geti orðið samskonar tímamót fyrir WNBA og þegar Larry Bird og Magic Johnson komu inn í NBA-deildina 1979.
Iowa city mayor Bruce Teague says the women's basketball team added $82.5M to the local economy
— Bleacher Report (@BleacherReport) April 11, 2024
(h/t @EliotClough) pic.twitter.com/9eTc2DXFiD