Árleg stóðhestaveisla var haldin í Ölfushöllinni fyrir smekkfullu húsi á laugardaginn var. Hrossið Steinn frá Stíghúsi var einn þeirra glæsilegu stóðhesta sem fram kom og var tollur undir hann boðinn upp til styrktar samtökunum Einstökum börnum.

Knapi á Steini var Þorgeir Ólafsson en klæðnaður hans og lagið sem var spilað á meðan Steinn kom fram vakti athygli og kátínu viðstaddra. Þorgeir var íklæddur KR-treyju og stuðningslag félagsins hljómaði í hljóðkerfinu.
Það var gert að beiðni eiganda Steins, Guðbrands Stígs Ágústssonar, sem lét þar með langþráðan draum rætast.
„Þegar ég byrjaði í þessari hestamennsku fyrir einhverjum árum tók ég þá ákvörðun innra með mér að ef ég myndi einhvern tímann lenda í því að hestur frá mér færi sem uppboðstollur á svona sýningu þá myndi ég fá knapana til að vera hátíðarklædda, í vel straujaðri og fallegri KR-treyju,“ segir Guðbrandur Stígur.
„Því eins og þjóð veit þá er KR flottasta íþróttafélag landsins. Það skemmdi ekki fyrir að hesturinn sem var þarna, Steinn frá Stíghúsi er brúnskjóttur, eða svartur og hvítur. Þá liggur nú beinast við að blasta fallegasta stuðningslagi allra tíma, KR-laginu með Bubba Morthens, undir. Það var það sem við gerðum,“ bætir hann við.
Tugir milljóna safnast fyrir góð málefni
Tollur undir Stein seldist nafnlausum styrktaraðila á 500 þúsund krónur sem renna til samtakanna Einstök börn, stuðningsfélags barna og ungmenna með sjaldgæfa sjúkdóma eða sjaldgæf heilkenni.
Hin árlega stóðhestaveisla er gjarnan nýtt til fjáröflunar fyrir góð málefni og hrósar Guðbrandur skipuleggjendum í hástert.

„Þau sem eru aðalsprautan í þessari stóðhestaveislu hafa verið Magnús Benediktsson og kona hans, Rakel. Síðan þau byrjuðu með þessa veislu hafa þau safnað fyrir líknarfélög, góðgerðafélög og einstaklinga, á milli 50 og 60 milljónum í gegnum þessar veislur,“
„Það er náttúrulega alveg einstakt verk hjá þeim að gera þetta og mikil vinna. Þau hafa staðið sig alveg svakalega vel að framfylgja þessu,“ segir Guðbrandur.
Líst vel á sumarið og vill strákinn heim
Karlalið KR hefur farið vel af stað í Bestu deild karla og unnið fyrstu tvo leiki sína, í fyrsta skipti frá árinu 2013. Fram er næsti andstæðingur á laugardaginn kemur en Guðbrandur er spenntur fyrir sumrinu.
„Mér líst bara vel á það. Ég er búinn að fylgjast dálítið með vorleikjunum og mér finnst vera skemmtileg ára yfir Vesturbænum og KR-liðinu og þetta leggst vel í mig. En ég held að hópurinn sé smá brothættur, við erum ekki með stóran hóp en ef það verða ekki mikil meiðsli ættum við að geta gert gott mót. Ég er alveg viss um það,“ segir Guðbrandur.

Gyrðir Hrafn Guðbrandsson er sonur hans en sá leikur með FH, eftir að hafa verið á mála hjá KR um tíma. Blessunarlega spila FH-ingar einnig í svörtu og hvítu.
„Það góða við það er að það er svarthvítur búningur, en ég verð að hryggja FH-ingana, vini mína, með því að hann er ekki jafn flottur og sá röndótti. Gyrðir hefur staðið sig vel en vonandi kannski fær hann einhvern tíma að klæðast aftur þeim röndótta,“ segir Guðbrandur Stígur að endingu.