Samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofu Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar nýtur Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, forskots á aðra frambjóðendur með 31,4 prósent fylgi. Katrínu var boðin þátttaka í Pallborðinu en kemst ekki vegna fyrri skuldbindinga. Næstur á eftir Katrínu er Baldur með 24 prósent, þá Jón með 18,9 prósent og Halla Hrund með 10,5 prósent.
Baráttan um Bessastaði verður til umræðu í Pallborðinu klukkan 13 á í dag, sem sýnt verður í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi.
Uppfært: Pallborðinu er lokið en upptöku má sjá að neðan.