Í tilkynningu þess efnis frá lögreglu segir að maðurinn hafi ítrekað komið við sögu hjá lögreglu. Nú síðast hafi hann verið handtekinn í austurborginni á sunnudagskvöld eftir að bifreið hans var veitt eftirför.
„Þar ók maðurinn, sem var í annarlegu ástandi, um Langholtshverfið og víðar og skeytti lítt um aðra vegfarendur, en mildi þykir að enginn slasaðist.“
Bifreið mannsins hafi verið ekið mjög ógætilega, meðal annars yfir leyfðan hámarkshraða, gegn rauðu ljósi, gegn einstefnu og bæði á gangstétt og göngustíg svo eitthvað sé nefnt.