Nú á vordögum hefur Þjóðkirkja Íslands það vandasama verkefni fyrir höndum að velja nýjan leiðtoga til að leiða starf kirkjunnar. Þetta tímabil er gróskutími hvar kirkjunnar fólk staldrar við til að ræða hvar við stöndum og hvert við viljum stefna sem opið og umfaðmandi samfélag kirkjunnar. Áskoranir þjóðkirkjunnar eru margar en sóknarfærin fleiri og mikilvægt að sem flest komi að umræðunni um mikilvægt starf boðandi og þjónandi kirkju.
Það er þakkarefni hve mörg hafa á undanförnum mánuðum gefið kost á sér í þetta mikilvæga verkefni. Og nú er svo komið að sóknarnefndafólk, kjörmenn, djáknar og prestar geta valið milli tveggja öflugra og reynslumikilla leiðtoga, en seinni umferð biskupskosninga hefst á morgun 2. maí á heimasíðu þjóðkirkjunnar.
Það er reynsla okkar sem þekkjum og höfum starfað með sr. Guðrúnu Karls Helgudóttur á vettvangi kirkjunnar að hún er traustsins verð. Guðrún er afar reynslumikil sóknarprestur og guðfræðingur, sem leitt hefur blómlegt starf fjölmennasta safnaðar landsins um margra ára skeið, komið að kennslu í guðfræðideild Háskóla Íslands og sömuleiðis sinnt mikilvægum trúnaðarstörfum á vettvangi kirkjunnar. Hún er öflug talskona kirkjunnar á opinberum vettvangi og hefur jafnframt því haft sig mjög í frammi í áhuga sínum og umhyggju fyrir réttindum jaðarhópa samfélagsins.
Hennar styrkleikar sem leiðtoga felast þó ekki síður í færni hennar til að virkja nærumhverfi sitt til góðra verka, efla þjónustu kirkjunnar í takt við þarfir sóknarbarna og styrkja böndin milli samfélags og þjóðkirkju.
Og það er vegna þessara kosta hennar og fjölmargra annarra sem leiðtogi, prestur og manneskja sem við kjósum sr. Guðrúnu Karls Helgudóttur sem biskup Íslands.
Við hvetjum alla sem kosningarétt hafa til að nýta atkvæðisrétt sitt á næstu dögum en kosningu lýkur á heimasíðu kirkjunnar á hádegi 7. maí.
Aðalsteinn Þorvaldsson, prestur í Akureyrar- og Laugalandsprestakalli
Aldís Rut Gísladóttir, prestur í Hafnarfjarðarprestakalli
Ása Laufey Sæmundsdóttur, prestur innflytjenda
Dagur Fannar Magnússon, héraðsprestur í Suðurprófastsdæmi
Daníel Ágúst Gautason, prestur í Fossvogsprestakalli
Edda Hlíf Hlífarsdóttir, prestur í Húnavatnsprestakalli
Erla Björk Jónsdóttir, sóknarprestur í Dalvíkurprestakalli
Eva Valdimarsdóttir, prestur í Fossvogsprestakalli
Eydís Ösp Eyþórsdóttir, djákni í Glerárprestakalli
Heiðrún Helga Bjarnadóttir Back, sóknarprestur í Borgarprestakalli
Helga Bragadóttir, prestur í Glerárprestakalli
Hildur Björk Hörpudóttir, sóknarprestur í Reykholtsprestakalli
Hólmfríður Ólafsdóttir, djákni í Fossvogsprestakalli
Jóhanna Gísladóttir, prestur í Akureyrar- og Laugalandsprestakalli
María Rut Baldursdóttir, prestur í Grafarholtsprestakalli
Oddur Bjarni Þorkelsson, prestur í Dalvíkurprestakalli
Sindri Geir Óskarsson, sóknarprestur í Glerárprestakalli
Stefanía G. Steinsdóttir, sóknarprestur í Ólafsfjarðarprestakalli
Toshiki Toma, prestur innflytjenda
Vigfús Bjarni Albertsson, prestur og forstöðumaður hjá Sálgæslu- og fjölskylduþjónustu kirkjunnar
Þóra Björg Sigurðardóttir, prestur í Garða- og Saurbæjarprestakalli
Þuríður Björg Wiium Árnadóttir, sóknarprestur Hofsprestakalls