Það leynist ýmislegt skemmtilegt í töskunni hjá Katrínu Öldu.

Hvað er í töskunni þinni og segðu okkur aðeins frá því sem er?
Allt frá ofnæmistöflum yfir í míní gjaldeyrissjóð.
Hefur einhver hlutur tilfinningalegt gildi?
Lítið chilli og fjögurra blaða smári sem ég fann þegar ég var að hanna töskuna og geymi núna alltaf í henni.
Er eitthvað sem er alltaf í töskunni þinni?
Lítil skissubók og penni, Rhode gloss og Hermes varalitir, ofnæmistöflur þegar vorið kemur og First Defence frá Vicks sem hefur bjargað mér frá því að verða veik síðan ég uppgötvaði það. Svo er ég yfirleitt með sólgleraugu og sólarvörn en það gleymdist í dag.

Hver er þín uppáhalds taska og afhverju?
KARLA02 frá KALDA. Hún er önnur taskan sem við framleiðum og var frekar lengi í fæðingu en þess virði á endanum. Hún er bæði praktísk og elevate-ar öll outfit sem mér finnst góðar töskur eiga að gera.

Ertu dugleg að taka til í töskunni þinni og halda röð og reglu?
Nei, mér finnst betra að hafa hlutina í smá kaótík.

Ertu gjarnan með margar töskur á þér eða margar til skiptanna?
Ég er alltaf bara með þessa, ég elska töskur sem virka jafn vel á mánudagsmorgun og laugardagskvöldum og þessi er einmitt þannig. Eina skiptið sem ég bæti annarri við er þegar ég ferðast, þá tek ég stærri útgáfuna af þessari með fyrir tölvu og ipad.

Stór eða lítil taska og afhverju?
Ég elska mest þegar þær eru í millistærð eins og þessi. Nógu stórar til að geyma allt nauðsynja dót í en nógu litlar til að ganga við allt.