Tacos El Califa de León sker sig nokkuð frá hinum fimmtán Michelin-veitingastöðum landsins, sem allir eru dýrir veitingastaðir í fínni kantinum. Tacos El Califa er tæplega tíu fermetra götubás , þar stálplatan sem maturinn er steiktur á tekur upp hálft plássið. Hinn helmingur hússins er yfirleitt stappaður af standandi fólki sem heldur plastdiskum með heitu takói.

Á matseðlinum eru bara fjórir réttir í boði, allt mismunandi gerðir af takói, og allt úr nautakjöti. „Leyndarmálið er einfaldleikinn í takóinu okkar. Í því er aðeins tortilla, rauð eða græn sósa og ekkert meira. Svo er kjötið í hæsta gæðaflokki,“ sagði nýkrýndur Michelin-kokkurinn Arturo Rivera Martínez við AP. Hann mælti með drykknum cocacola með matnum sem hann býður upp á.
Til að reiða fram takó að hætti hússins, grípur Rvera Martínez næfutþunnan bita af nautafillet og skellir því á sjóðheita stálplötuna, kreistir yfir bitann smá salt og hálfa límónu. Svo er tortilladeigið hitað upp á sömu plötu. Eftir tæplega mínútu snýr hann kjötinu og tortillunni við í örskotsstundu, skellir þessu svo á plastdisk og kallar fram nafn þess, sem pantaði. Viðskiptavinurinn bæti svo þeim sósum sem honum hugnast við eftir eigin höfði.

Kokkurinn, Rivera Martínez vildi ekki deila öllum leyndarmálum sínum, en gaf þó upp að nákvæmt hitastig pönnunnar skipti sköpum, hún er hituð upp í svakalegar 360 gráður.
Verðlagning telst nokkuð há í mexíkóskum samanburði, en hvert takó kostar um fimm dollara. Af vinsældum staðarins að dæma virðist það þó ekki koma að sök.