Konurnar, allar 19 eða 20 ára gamlar, eru hermenn Ísraelshers og virðast hafa verið á náttfötunum þegar vopnaðir bardagamenn Hamas réðust inn í húsnæðið þar sem þær höfðust við.
Á myndbrotum, sem eru sögð úr búkmyndavélum Hamas-liða, sjást vígamennirnir binda konurnar og hafa í hótunum við þær. Einn kallar þær „hunda“ og hefur í hótunum við þær.
Ein konan reynir að biðla til mannanna og segist meðal annars eiga vin í Palestínu, á meðan önnur spyr hvort mennirnir tali ekki ensku.
סרטון חטיפת התצפיתניות | החטופה נעמה לוי למחבלים: "יש לי חברים בפלסטין". מחבל לאחת החטופות: "את כל כך יפה"@NOFARMOS pic.twitter.com/OfIuWSnECo
— כאן חדשות (@kann_news) May 22, 2024
New York Times, sem hefur staðfest uppruna myndbrotanna, segir fjölskyldum kvennanna hafa verið sýnt samansett myndskeiðið fyrir nokkrum vikum og hafa fengið afrit af því á þriðjudag.
„Ég bið ykkur; sýnið þetta myndskeið á hvejrum degi, byrjið útsendingar ykkar á því,“ er haft eftir Eli Albag, föður Liru Albag, sem er ein af konunum. „Þar til einhver vaknar, þjóðin vaknar, og áttar sig á því að þær hafa verið yfirgefnar í 229 daga.“
Fjölskyldurnar eru sagðar hafa ákveðið að deila myndskeiðinu til þess að auka þrýsting á stjórnvöld í Ísrael um að ganga aftur að samningaborðinu og freista þess að semja um lausn þeirra gísla sem enn eru í haldi Hamas.
Ráðamenn hafa hins vegar nýtt sér tækifærið til að setja myndskeiðið í samhengi við ákvarðanir Írlands, Noregs og Spánar um að viðurkenna Palestínu sem sjálfstætt ríki. Utanríkisráðherrann Israel Katz sagðist til að mynda myndu sýna myndskeiðið þegar hann læsi yfir hausamótum sendiherra ríkjanna.
Fjölskyldur gíslanna funduðu með fulltrúum stjórnarinnar í gær, meðal annarra Benny Gantz, sem situr í stríðsráði ríkisstjórnarinnar. Hann sagði myndefnið sláandi og hét því að hika ekki við að taka erfiðar ákvarðanir til að fá gíslana aftur heim.
Yair Lapid, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, sagði myndskeiðið áminningu til heimsins um illskuna sem Ísraelsmenn væru að berjast við á Gasa.