DeAndre Kane hitti engu af þrettán skotum sínum fyrir aftan þriggja stiga línuna í gærkvöldi og stórbætti þar með met yfir flest þriggja stiga skot í úrslitum án þess að hitta.
Metið var áður í eigu Teits Örlygssonar og Calvin Burks Jr., sem báðir skutu níu skotum án þess að hitta. Teitur gerði það sem leikmaður Njarðvíkur í úrslitaeinvígi gegn Tindastóli árið 2001. Calvin Burks Jr. lék það svo eftir í liði Keflavíkur árið 2021 í úrslitaeinvígi gegn Þór Þorlákshöfn.
„0 af 9 Teitur!? Byrjum á stóru hlutunum, hvað var að gerast þarna?“ skaut Helgi Már Magnússon á Teit.
„Við skulum líka tala um það, hverjir urðu Íslandsmeistarar 2001? Það var það eina sem skipti máli og það vissi enginn af þessu Stebbi,“ sagði Teitur sér til varnar.
„Ég get lofað því að ég dró þetta ekki upp úr rassgatinu á mér,“ svaraði þáttastjórnandinn Stefán Árni þá við mikil hlátrasköll sérfræðinganna.
Mögulega meiddur en virkaði bara þreyttur
Þeir sneru sér þá að vandamáli DeAndre Kane, sem átti afar erfitt uppdráttar í gær þegar lið hans Grindavík tapaði gegn Val í þriðja leik úrslitaeinvígis Subway deildar karla.
„Við Teitur töluðum um þetta hérna í seinni hálfleik, Kane fékk bara galopna þrista, galopna“ sagði Helgi Már.
Stefán Árni kom Kane aðeins til varnar en aðrir sérfræðingar voru honum ósammála og sögðu Kane hafa litið illa út í leiknum, líkt og hann væri eitthvað þreyttur.
„Hann var bara ekki tengdur. Mér fannst athyglisvert að það væri verið að nudda öxlina hjá honum þegar hann settist á bekkinn. Getur það ekki skipt máli ef hann er eitthvað tæpur í öxl, það auðvitað truflar skotið.“
Innslagið allt úr Subway Körfuboltakvöldi má sjá í spilaranum hér að ofan. Næsti leikur í úrslitaeinvíginu fer svo fram næsta sunnudag klukkan 19.15 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.