Bylgjan, Vísir, Stöð 2 og Samgöngustofa standa nú fyrir átaki um að sýna ábyrgð í umferðinni. Sniglar Bifhjólasamtök lýðveldisins eru ein þeirra sem taka þátt í átakinu.
Fyrirmyndin að herferð Snigla er Tiktok trend sem kallast Adopt a Biker, og gengur út á að bílstjórar sem sjá hjólafólk í umferðinni „taki það að sér" og passi það. Skipti jafnvel um akreinar til að vera á eftir hjólamanneskjunni og halda bilinu svo það verði ekki keyrt aftan á það.
„Við snöruðum þessu yfir á íslensku, „Viltu passa mig?“ en það er barnslega einlægt að biðja einhvern um að passa sig og höfðar til manngæsku í fólki.
Ef vinkona mín segir til dæmis „æi viltu passa mig í kvöld“ á djamminu þá er ég alltaf með varann á mér með hana. Við vitum vel að ef einhver biður mann um að passa sig þá er maður með augun á viðkomandi.“
Ökumenn oft ómeðvitaðir um minni farartæki
„Við viljum að umferðin sé meðvituð um hjólafólk, líka vespur, rafhjól, hlaupahjól og auðvitað gangandi vegfarendur en við Sniglar einblínum auðvitað sem mest á okkar fólk. Mótorhjól eru lítil, snögg upp í hraða og lendum við oft í því að ökumenn sjá okkur ekki og margir eru ómeðvitaðir um okkur því miður,“ segir Jokka.
Líttu tvisvar
Áminningin „Líttu tvisvar" sem hefur verið slagorð Snigla til margra ára á því alltaf við.

„Líttu tvisvar“ er enn í fullu gildi og við höldum því svo sannarlega á lofti.
„Sniglar eru 40 ára á þessu ári og af því tilefni er afmælisútgáfa á peysunum okkar og stendur aftan á þeim „Líttu tvisvar" með endurskini til að leggja enn meiri áherslu á það. Eins er hægt að fá límmiða í bíla sem á stendur „Sérðu mótorhjól, líttu tvisvar" og er hægt að fá svona límmiða gefins í Sniglaheimilinu ef fólk vill.“

Bylgjan, Vísir, Stöð 2 og Samgöngustofa standa nú fyrir átaki um að sýna ábyrgð í umferðinni. Góður hópur samstarfsaðila leggur átakinu lið; F.Í.B, Hopp, Hreyfill, Höldur Bílaleiga Akureyrar, Sniglar - Bifhjólasamtök lýðveldisins og Steypustöðin. Tökum höndum saman og sýnum ábyrgð í umferðinni alla daga.